Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41918
Ágrip
Meistaraprófsverkefni þetta fjallar um rannsókn sem höfundur gerði á persónustyrkleikum einstaklinga sem sinna stuðningi við börn í leikskóla í Reykjavík og hvaða bjargir hafa reynst þeim einstaklingum vel til að sinna störfum sínum sem best. Ákveðinn hluti leikskólabarna eru með stuðning í lengri eða styttri tíma á sinni leikskólagöngu. Það getur verið vegna fatlana, félagslegra aðstæðna, málþroskaröskunar, hegðunarvanda eða annars sem veldur því að börn þurfi á stuðningi að halda. Stuðningur getur verið í formi sérkennslu, málörvunar, félagslegs stuðnings, hegðunaraðstoðar, lyfjagjafar eða annars sem börn þarfnast á leikskólatíma.
Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hvaða bjargir, styrkleikar eða annað geri það að verkum að starfsfólk sem sinnir stuðningi geti gert það vel og lengi. Rannsóknaraðferðin er eigindleg og voru tekin einstaklingsviðtöl við fjóra einstaklinga auk greiningar á niðurstöðum persónustyrkleikaprófa fimm einstaklinga sem starfa við stuðning við börn í leikskóla. Þýði rannsóknarinnar er starfsfólk sem hefur starfað við stuðning í leikskóla í Reykjavík í að minnsta kosti tvö ár.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að stuðningur stjórnenda, húmor og sveigjanleiki einstaklinga auk jafningjahandleiðslu, formlegrar og óformlegrar, á vettvangi hefur reynst þessum einstaklingum best í sinni vinnu í leikskólanum. Viðmælendur höfðu ólíkar upplifanir af starfinu en áttu augljóslega margt sameiginlegt þegar þeir lýstu starfi sínu, reynslu og björgum í starfi. Von höfundar er að niðurstöður þessarar rannsóknar geti aðstoðað stjórnendur leikskóla við að velja starfsfólk í stuðningsstörf innan leikskólans sem og að hægt verði að nýta niðurstöðurnar til að hlúa betur að fólki sem nú þegar sinnir þessum stöfum.
Abstract
This M.Ed. thesis is based on a study that the author did on the character strengths of individuals who provide support for children with disabilities and other learning, behavior, and/or development delays in preschools in Reykjavík. The goal of the study was to get information on what resources have helped them to do well at their job. A certain proportion of children in preschools get extra support for longer or shorter periods during their time in preschool. The support can be provided due to disabilities, social circumstances, language development disorders, behavioral problems, or something else that causes children to need extra support. This support can be in the form of special education, language stimulation, social support, behavioral management, medication, or other things that the child needs during preschool.
The study aimed to find out what resources, strengths, or other contributors are of help for the support staff to do their job well and for a long time. The research method is qualitative where four individual interviews were conducted. The results of a character strengths test among five individuals who work as support staff for children in preschool were also analyzed. The population of the study are individuals who have worked as support staff in preschools in Reykjavik for at least two years.
The main results of the study are that the support of managers, humor, and flexible individuals along with peer guidance, formal and informal, has been the key for these individuals to succeed in their jobs. The interviewees have different experiences at their job but also a lot in common when describing their work, experience, and their resources at work. The author hopes that the results of this study can be of assistance to preschool administrators when hiring people to work as support for children in preschools and to create a better working environment for people already in such roles.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Magnea_Arnardóttir_Lokaskil_Med.pdf | 668,04 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |