Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41955
Personality traits in relationship satisfaction : which traits are beneficial, and which can be harmful?
Samband á milli persónuleikaþátta og áhrif þeirra á sambandsánægju voru kannaðir með því að bera saman niðurstöður úr spurningalista sem mælir sambandsánægju (The Dyadic Adjustment Scale; DAS) við niðurstöður úr HEXACO-60 persónuleikaprófinu. Línulegri aðhvarfsgreiningu var beitt til að fá fram niðurstöður og til að rannsaka fylgni milli persónuleikaþátta innan HEXACO-60 prófsins með tilliti til DAS. Þátttakendur voru 58 talsins á aldrinum 23-65 ára, þrátt fyrir að flestir þátttakendur hafi verið undir 30 ára aldri. Þátttakendur skoruðu að meðaltali einkum hátt í öllum persónuleikaþáttum HEXACO-60 prófsins og einnig hátt í sambandsánægju. Við fyrstu sýn virtist vera munstur; munur á úthverfu og tilfinningarsemi var til staðar hjá þeim einstaklingum er skoruðu hvað hæst í sambandsánægju og jafnframt þátttakendum er skoruðu hvað lægst, sem er í samræmi við fyrri rannsóknir. Hins vegar leiddu niðurstöður annað í ljós varðandi heiðarleiki-auðmýkt (honesty-humility) persónuleikaþáttarins. Niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna möguleg áhrif heiðarleika-auðmýktar á sambandsánægju þrátt fyrir að fyrrum rannsóknir hafi frekar einblínt á aðra persónuleikaþætti. Þrátt fyrir það voru niðurstöður í heild sinni ekki tölfræðilega marktækar. Áframhaldandi rannsókn er þörf til að styrkja þessar niðurstöður og rannsaka frekar ef heiðarleiki-auðmýkt hefur dýpri áhrif á sambandsánægju heldur en upprunalega var haldið fram.
Lykilhugtök:
persónuleikaþættir, sambandsánægja, heiðarleiki-auðmýkt
This study focused on how certain personality traits affect relationship satisfaction by comparing scores from the Dyadic Adjustment Scale (DAS) to the HEXACO-60 model. Linear regression was used for this comparison as well as examining correlation between certain domains of the HEXACO-60 model in relation to scores from DAS. The sample consisted of 58 participants, ages 23-65 years, although most participants were under the age of 30. On average participants scored high in each of the domains of the HEXACO-60 model as well as scoring high in relationship satisfaction. When first reviewing the data, it seemed as if there was a pattern; differences in extraversion as well as emotionality were consistent in both couples which scored high in relationship satisfaction as well as the couples who scored low, which is similar with past findings. However, this was not what the results indicated, rather there were interesting findings regarding the honesty humility-domain of the HEXACO-60 model. The results indicated a possible connection between honesty-humility and relationship satisfaction while past findings regarding this topic have focused on other traits being responsible. On the other hand, the results did not indicate statistical significance for the dataset. Future research is needed to confirm these findings if honesty-humility has a deeper connection to relationship satisfaction than originally anticipated.
Keywords:
personality traits, relationship satisfaction, honesty-humility
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Agnes_lokaritgerð.pdf | 753,82 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |