is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/41973

Titill: 
  • Kynbundið ofbeldi : viðhorf háskólanema til mýta um kynferðisofbeldi og væntingar þeirra um hegðun og tilfinningasemi þolenda.
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Kynferðisofbeldi er stórt vandamál á heimsvísu. Rannsóknir hafa leitt í ljós að viðteknar mýtur um kynferðisofbeldi spila lykilhlutverk í að viðhalda menningu þar sem valdaójafnvægi milli karla og kvenna, með tilheyrandi ofbeldi gegn konum, viðgengst.
    Tilgangur þessarar rannsóknar er að kanna viðhorf nema í sálfræði, lögreglufræði og lögfræði í Háskólanum á Akureyri til mýta um kynferðisofbeldi og væntingar þeirra um hegðun og tilfinningasemi þolenda afbrota. Tveir spurningalistar voru lagðir fyrir þátttakendur, annar sem mælir viðhorf til mýta um kynferðisofbeldi og hinn sem mælir viðhorf til hegðunar þolenda ofbeldis, áhrif hennar á mat á trúverðugleika frásagna þeirra og fleira. Niðurstöður
    sýndu að minnihluti þátttakenda aðhyllist mýtur um kynferðisofbeldi í miklum mæli en karlar eru þó líklegri til þess en konur og yngra fólk frekar en eldra. Þá taldi minnihluti þátttakenda að tilfinningasemi eða hegðun þolenda væri merki um sannsögli. Þeir sem samþykkja frekar mýtur um kynferðisofbeldi eru líklegri til þess að telja hlutfall falskra tilkynninga um ofbeldi hærra en aðrir. Einnig eru þeir líklegri til að telja tilfinningaríka hegðun þolenda hafa áhrif á trúverðugleika þeirra sem og hegðun þolenda sem er ekki í samræmi við þá hegðun sem búist er við að þolendur sýni. Niðurstöður voru að mestu leyti í samræmi við fyrri rannsóknir og tilgátur rannsakenda. Þær sýna að báðum kynjum, þó körlum í meira mæli, hættir enn til að samþykkja mýtur um kynferðisofbeldi, gerendur og þolendur og væntingar í samskiptum kynjanna sem byggja á því að karlar eigi að vera ráðandi en konur undirgefnar. Rannsakendur binda vonir við að þessi viðhorf séu á undanhaldi enda eiga þau þátt í að viðhalda kynjamisrétti og nauðgunarmenningu

  • Útdráttur er á ensku

    Sexual violence is a major worldwide issue. According to research, accepted myths about sexual violence play a critical role in maintaining a culture in which power imbalances between men and women are prevalent, with associated violence against women. This study aims to examine the attitudes of students in psychology, police science, and law at the University of Akureyri to myths about sexual violence and the behavior of crime victims. Two questionnaires were administered to participants, one measuring attitudes towards myths about sexual violence and the other measuring attitudes towards the behavior of victims of violence, its impact on assessing the credibility of their stories, and more. The results showed that a minority of participants support myths about sexual violence to a large extent. Still, men are more likely to do so than women and younger people more than older people. A minority of participants also believed that victims' feelings or behavior were a sign of veracity. Those who accept myths about sexual violence are more likely to consider the likelihood of false reports of violence higher than others. They are also more likely to believe that victims' emotional behavior and behavior that differs from what victims are expected to exhibit affects their credibility. The results were largely in line with previous research and the researchers' hypotheses. They indicate that both sexes, though men to a greater extent, tend to accept myths about sexual violence, offenders, victims, and gender interaction norms based on the belief that men should be dominating and women should be submissive. Researchers hope that these attitudes continue to diminish as they contribute to maintaining gender inequality and rape culture.

Samþykkt: 
  • 14.6.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/41973


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Kynbundið-Ofbeldi-Eva_Sólveig.pdf806.26 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna