Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/42041
Það er umhugsunarefni að blaðagreinar um öryggismál í byggingariðnaði skrifaðar með 30 ára millibili, árið 1988 og 2018 gætu hafa verið skrifaðar á sama tíma og gefa sömu skýru skilaboðin um að það þurfi að gera betur. Á þessu sama 30 ára tímabili hefur tekist að fækka banaslysum hjá sjómönnum svo um munar og innan stóriðjunnar hefur orðið jákvæð þróun í öryggismálum og er talað um „stóriðjuáhrifin í öryggismálum“. Í þessari grein er skoðuð vegferð þessara þriggja atvinnugreina í öryggismálum með því að greina slysatölfræði og taka viðtöl við einstaklinga sem hafa reynslu af öryggismálum. Í viðtölunum er reynt að taka saman leiðarstef um hvað virkar vel og hvar má gera betur þegar kemur að öryggismenningu. Í fljótu bragði virðist niðurstaðan sú að byggingariðnaðurinn þarf að leggja meiri áherslu á öryggismál og slysavarnir og hægt er að yfirfæra mikilvæga þekkingu sem skapast hefur í sjómennsku og stóriðju.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
MPM Lokaverkefni - Már Sigurðsson.pdf | 936.37 kB | Open | Complete Text | View/Open |