is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42043

Titill: 
  • Styður íslenskt lagaumhverfi við góða verkefnastjórnsýslu eins og hún er skilgreind og viðurkennd á alþjóðavettvangi?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Verkefnastjórnsýsla eru leikreglurnar utan um ákvarðanatöku og framkvæmd innan skipuheildar sem byggir á gegnsæi, ábyrgð og skýrum hlutverkum aðila. Stjórnsýsla afmarkar einnig hvert eignarhald verkefnis er og hver stýrir verkefninu.
    Stefna er mörkuð með lagasetningu eða ákvörðun stjórnvalda og það er hlutverk fagfólks og stofnana að koma stefnunni í framkvæmd. Áður en ráðist er í lagasetningu er hægt að efla til samráðs við hagsmunaaðila og sérfræðinga. Með samráði er hægt að afla upplýsinga um mismunandi leiðir og afleiðingar þeirra.
    Steinunn Marta Gunnlaugsdóttir bar saman verkefnastjórnsýslu hins opinbera á Íslandi við verkefnastjórnsýslu í Noregi í meistararitgerð sinni við Háskólann í Reykjavík „Umgjörð verkefnastjórnsýslu í viðamiklum opinberum verkefnum á Íslandi og í Noregi: Skilningur og aðferðafræði“. Verkefni þetta styðst við rannsókn hennar og leitast við að svara því hvort að íslenskt lagaumhverfi styðji við góða verkefnastjórnsýslu eins og hún er skilgreind og viðurkennd.
    Niðurstaðan er sú að margt bendir til þess að þörf sé á að skerpa lagaumgjörð um opinberar framkvæmdir. Lagaumgjörðin við opinberar framkvæmdir er til staðar en sú umgjörð styður ekki nægilega vel við nútíma verkefnastjórnsýslu. Þá hefur verið bent á þörfina á því að skýra aðferðafræði og staðla verklag. Kallað hefur verið eftir samráðsvettvangi stjórnvalda, atvinnulífs og fræðasamfélags.

Samþykkt: 
  • 15.6.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42043


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MPM_Lokaverkefni_Erla Stefánsdóttir_verkefnastjórnsýsla.pdf532,85 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
MPM_Lokaverkefni_Erla Stefánsdóttir_verkefnastjórnsýsla.pdf532,85 kBOpinnGreinargerðPDFSkoða/Opna