is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > MEd/MPM/MSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþróttafræðideild -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42048

Titill: 
  • Lífsferilsmat söluvara : hvert er eðli og umfang lífsferilsmats söluvara hjá 4 íslenskum fyrirtækjum og eru þau að nýta sér gæðastaðalinn ISO14040:2006E?
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Vitundavakning um lífsferilsmat söluvara (e. Life Cycle Assessment, LCA) hefur aukist mikið á síðustu örfáu árum. Fyrirtæki eru farin að sjá hag sinn í því að sýna fram á kolefnisspor sitt og birta fyrir viðskiptavini sína. Einhver fyrirtæki á Íslandi eru farin að skoða LCA söluvara sinna. Skoðað var í þessari rannsókn fjögur íslensk fyrirtæki sem eru byrjuð að skoða LCA, hvaða umfang þau eru að nota í þessum útreikningum sínum og hvort þau séu öll að vinna eftir sama gæðastaðli. Sérstaklega var spurt hvort verið væri að nota ISO 14040:2006E. Niðurstöður sýndu að mjög ólíkt var hvaða þætti fyrirtækin eru að taka með inn í umfang útreiknings á LCA. Sem dæmi um slíka þætti má nefna hráefni, umbúðir og flutning. Öll fyrirtækin studdust við gæðastaðal en þó voru fæst þeirra sérstaklega að miðast við ISO 14040:2006E. Þrátt fyrir það voru þau að uppfylla flesta þá þætti sem taldir eru þar fram. Rannsóknin var unnin í samstarfi við Tandur hf. og voru niðurstöður þessarar rannsóknar hagnýttar með því að taka saman það umfang sem Tandur hf. mun í framhaldi nota við sína LCA útreikninga. Reiknað var LCA fyrir kerfishreinsiefnið Brite-Cip. Að lokum var sú niðurstaða birt í vefverslun fyrirtækisins.

Samþykkt: 
  • 15.6.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42048


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni - Lífsferilsmat söluvara.pdf1,05 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna