is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Sálfræðideild / Department of Psychology >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42072

Titill: 
  • Titill er á ensku Eating disorders among children and adolescent referrals to the Child and Adolescent Psychiatric Department (BUGL)
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Útdráttur er á ensku

    Eating disorders (EDs) have the greatest fatality rate of any mental condition, with suicide and medical problems being the most common causes of death. Comorbidities have been examined, and for the most part causes for EDs extended impact is the relationship with other psychiatric disorders. Trauma history has been documented in EDs patients, such as childhood sexual abuse and that can be a significant risk factor for EDs patients. Other research has shown that adolescents girls and women that have been sexually assaulted are more likely to demonstrate ED symptoms. The focus of this study was to examine all referrals that the eating disorder team received from the Child and Adolescent Psychiatric department BUGL from 2018-2021. The aim was to map children and adolescents given a EDs diagnosis by looking at the prevalence and examining their symptoms. The participants were 101 children and adolescents from the age of 10-18 years old. The results showed that 91% of the children and adolescents experienced anxiety symptoms before their ED diagnosis. 56% experienced depression symptoms and 54.5% experienced both anxiety and depression symptoms. A significant relationship was found between disruption in communications with parents and separated parent, mental/physical abuse, and depression symptoms.

  • Átraskanir eru með hæstu dánartíðni allra geðsjúkdóma, þar sem sjálfsvíg og læknisfræðileg vandamál eru algengustu dánarorsakir. Átraskanir eru algengar hjá unglingum og konum. Fylgiraskanir hafa verið rannsakaðar í tengslum við átraskanir og gefur það til kynna að það sé ein helsta orsök langtímaáhrifa átröskunareinkenna. Áfallasaga hefur verið skoðuð hjá sjúklingum með átröskun, áföll á borð við kynferðislegt ofbeldi í æsku og getur það verið stór áhættuþáttur fyrir átröskunarsjúklinga. Rannsóknir hafa tekið fram að unglingar og ungar konur sem urðu fyrir kynferðislegu ofbeldi eru líklegri til að greina frá átröskunar einkennum. Áhersla þessarar rannsóknar var að skoða allar tilvísanir sem átröskunarteymið fékk frá Barna- og unglingageðdeild BUGL árin 2018-2021. Markmiðið var að kortleggja börn og unglinga sem fengu greiningu á átröskun með því að skoða algengi einkenna þeirra fyrir greiningu. Þátttakendur voru 101, börn og unglingar á aldrinum 10-18 ára. Niðurstöður sýndu að 91% barna og unglinga upplifðu kvíðaeinkenni áður en þeir greindust með átröskun. 56% upplifðu þunglyndiseinkenni áður en þeir greindust og 54.5% upplifðu bæði kvíða og þunglyndiseinkenni áður en þeir greindust með átröskun. Marktæk tengsl voru á milli truflunar á samskiptum við foreldra og skilnaðar foreldra, andlegs og líkamlegs ofbeldis og þunglyndiseinkenna.

Samþykkt: 
  • 16.6.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42072


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Eating disorders among children and adolescent referrals to the Child and Adolescent Psychiatric Department (BUGL)!.pdf402,67 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna