Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42129
Listrænn aktívismi er grein sem fer sífellt stækkandi. Þar sameinast skapandi afl listarinnar og stefnumótandi aðgerðir aktívismans með það að markmiði að hafa áhrif á samfélagið og knýja fram breytingar. Í þessari ritgerð voru rannsökuð þrjú listræn aktívisma verkefni sem eiga það sameiginlegt að hafa náð markmiðum sínum og haft áhrif á þúsundir manna. Aðferðafræði verkefnanna var skoðuð út frá breytingastjórnunarlegu sjónarhorni og spegluð í átta skrefa aðferðafræði John P. Kotter sem sett er fram í bókinni Leading Change. Í ljós kom að verkefnin nýttu sér ekki átta skrefa aðferð Kotter til að stýra verkefnunum. Skref Kotter raungerðust þó í öllum verkefnunum. Þeir þættir sem skrefin stuðla að, voru til staðar í verkefnunum og leiddu til árangursríkrar niðurstöðu. Vangaveltur um þessar niðurstöður eru ræddar, hvaða spurningar þær vekja og hvaða lærdóm má draga af þessum samanburði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lovísa Ósk Gunnarsdóttir - Lokaverkefni.pdf | 407,78 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |