Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/42278
Á sama hátt og börn tileinka sér orðaforða og reglur tungumálsins til að gera sig skiljanleg fyrir öðrum, tileinka þau sér fyrirframgefnar hugmyndir um hvernig sé best að túlka heiminn með teikningu. Til að aðrir geti séð að húsið sem þú ert að teikna sé hús, er best að byrja á ferning með þríhyrning ofan á. Hringur er sól, þríhyrningur fjall. Bogadregnar línur sem mætast í hvössu horni: farfuglar á leiðinni út í fjarskann. En hvað með þessa bugðóttu línu? Ójöfnur á veginum eða hættulegir snákar? Skífa sem er deilt í fjóra hluta ... verða veitingar?
Ég eyddi fyrstu árunum mínum í Malawi, landi í suðaustur Afríku. Verkefnið 108 Lilongwe er sjónræn orðabók sem lýsir bernskuminningum frá Íslandi og Malawi. Miðlunin er bók úr textíl unnin með aðferðinni batik.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
asdishanna.honnunargreining.pdf | 23.26 MB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna |