Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42453
Mobile applications and quality of life in breast cancer patients and survivors : a systematic review
Breast cancer was the most common type of cancer in 2020 and it remains the leading cause of cancer-related deaths among females worldwide. Despite an increase in incidence, mortality rates are decreasing in most Western countries. As a result, many breast cancer patients live many productive years following treatment. However, the majority of breast cancer treatments severely affect quality of life (QOL), causing both physical and psychosocial side effects that may disrupt the patient's physical function and mental well-being. These side effects may follow into survivorship and persist long after completion of treatment.
Whilst many of the risk factors associated with breast cancer are beyond control, such as age, sex, race, family history and genetic factors, there are also modifiable factors conditioned by lifestyle. Various lifestyle interventions have been shown to have a positive effect on the side effects experienced during and following breast cancer treatment, increasing QOL and well-being. These include physical activity interventions as well as various integrative therapies such as yoga, mindfulness and stress reduction techniques.
There is a growing body of evidence for the use of digital health technologies, such as mobile applications (apps), to support self-management, decrease symptom burden and improve QOL in cancer patients. Whilst previous reviews have specifically addressed breast cancer, an updated overview of the effects of mobile apps on QOL and mental well-being in breast cancer patients and survivors is needed. The aim of this thesis and review is to summarise the existing research on breast cancer specific apps and their effect on QOL and mental well-being measures.
Brjóstakrabbamein var algengasta tegund krabbameins árið 2020 og er ein helsta orsök krabbameinstengdra dauðsfalla meðal kvenna um allan heim. Þrátt fyrir aukna tíðni brjóstakrabbameins, er dánartíðnin þó á niðurleið í flestum vestrænum löndum. Þar af leiðandi eru margir brjóstakrabbameinssjúklingar sem lifa virku lífi mörg ár eftir fyrstu meðferð. Hins vegar hefur meirihluti brjóstakrabbameinsmeðferða alvarleg áhrif á lífsgæði, meðferðin getur valdið bæði líkamlegum og sálfélagslegum aukaverkunum sem geta truflað líkamlega virkni og andlega líðan sjúklingsins. Aukaverkanir geta fylgt sjúklingum lengi og haft áhrif á lífsgæði jafnvel löngu eftir að meðferð lýkur.
Margir áhættuþættir brjóstakrabbameins eru óviðráðanlegir, eins og aldur, kyn, kynþáttur, fjölskyldusaga og erfðafræðilegir þættir, en einnig eru áhættuþættir tengdir lífsstíl sem hægt er að hafa áhrif á. Sýnt hefur verið fram á að ýmis lífsstílsinngrip, meðan á og eftir brjóstakrabbameinsmeðferð, hafi jákvæð áhrif á aukaverkanir sem konur verða fyrir samt því að auka lífsgæði og vellíðan. Dæmi um inngrip er markviss hreyfing sem og ýmsar samþættar meðferðir eins og jóga, núvitund og aðferðir til að draga úr streitu.
Rannsóknir benda til þess að notkun tækni, eins og smáforrita, til þess að styðja við stjórnun einkenna, draga úr aukaverkunum og bæta lífsgæði hjá krabbameinssjúklingum. Fyrri kerfisbundnar samantektir hafa fjallað sérstaklega um notkun smáforrita fyrir brjóstakrabbamein, en þó er tímabært fyrir uppfært yfirlit yfir áhrif smáforrita á lífsgæði og vellíðan hjá brjóstakrabbameinssjúklingum og lifendum. Markmið þessarar meistararitgerðar og samantektar er að draga saman fyrirliggjandi rannsóknir á sértækum smáforritum fyrir brjóstakrabbamein og áhrifum þeirra á lífsgæði og vellíðan.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Saeunn Rut Saevarsdottir_MPH thesis_Mobile applications and quality of life in breast cancer patients and survivors - a systematic review_FINAL-min.pdf | 900,92 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
| SaeunnRutSaevarsdottir_skemman_yfirlysing_lokaverkefni_25.05.2022.pdf | 325,05 kB | Lokaður | Yfirlýsing |