Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/42466
Heila- og mænusigg (MS) er algengasti taugasjúkdómurinn sem ungir og miðaldra einstaklingar greinast með. Rannsóknir hafa sýnt að 20-50% einstaklinga greindir með MS upplifi sálræn einkenni, líkt og kvíða og þunglyndi. Algengi kvíða er hærri á meðal einstaklinga með MS samanborið við almenning. Markmið þessarar rannsóknar var að skoða hvort einstaklingar greindir með MS á Íslandi upplifi einkenni kvíða. Jafnframt var skoðað einkenni síþreytu og lífsgæði samanborið við einstaklinga ekki greinda með sjúkdóminn. Spurningarlistinn innihélt spurningar um aldur, kyn, MS greiningu og fjölda ára frá greiningu. Einnig voru settir fram þrír spurningarlistar til að meta kvíða, síþreytu og lífsgæði. Það voru 363 þátttakendur, þar af 51.2% greindir með MS og meirihluti þátttakendanna voru kvenkyns (79.2%). Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að einstaklingar með MS voru með martækt meiri einkenni kvíða og síþreytu, og verri lífsgæði samanborið við einstaklinga ekki greinda með sjúkdóminn. Einstaklingar sem voru greindir innan fimm ára voru með marktækt meiri kvíða en einstaklingar greindir lengur en 11 ár. Fylgni var á milli kvíða, síþreytu og lífsgæða hjá einstaklingum greinda með MS. Rannsóknir á MS og kvíða hafa verið framkvæmdar margoft, en minna er vitað um algengi kvíða á meðal einstaklinga með MS á Íslandi. Er því gríðarlega mikilvægt að framkvæma rannsókn á einstaklingum með MS varðandi þeirra andlegu líðan.
Lykilorð: Multiple sclerosis, kvíði, síþreyta, lífsgæði
Multiple sclerosis is the most common neurological disability affecting young and middle- aged adults. Research has shown that 20% to 50% of individuals with MS experience psychological symptoms, such as anxiety and depression. Individuals with MS have a higher prevalence of anxiety compared to the general population. The aim of this study was to examine whether individuals diagnosed with MS in Iceland experienced symptoms of anxiety. Furthermore, this study also examined symptoms of fatigue and quality of life for individuals with MS compared to individuals not diagnosed with the disease. The questionnaire included questions about age, gender, MS diagnosis, disease duration, and three questionnaires to measure anxiety, fatigue, and quality of life. The study consisted of 363 participants, 51.2% of whom were diagnosed with MS, and the majority were female (79.2%). The results showed that individuals with MS had significantly higher symptoms of anxiety, fatigue, and lower quality of life than individuals not diagnosed. Individuals with a shorter disease duration had significantly more symptoms of anxiety compared to individuals with a longer disease duration. Furthermore, there was a correlation between anxiety, fatigue, and quality of life for individuals diagnosed with MS. Research on MS and anxiety has been conducted numerous times. However, less is known about the prevalence in Iceland. Therefore, it is crucial to research individuals with MS in Iceland regarding their psychological well-being.
Keywords: Multiple sclerosis, anxiety, fatigue, quality of life
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
bs ritgerð - skemman skila.pdf | 1.66 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |