is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42489

Titill: 
  • Einhverfar stúlkur og skólakerfið
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í verkefni þessu beinum við sjónum okkar að einhverfum nemendum í grunnskólum, einkum stúlkum með áherslu á hvernig best megi styðja við virka þátttöku þeirra í skólakerfinu. Í því ljósi er horft til starfsábyrgðar og sérþekkingar þroskaþjálfa. Í síbreytilegu samfélagi okkar er mikilvægt fyrir starfsstétt þroskaþjálfa að vera ávallt tilbúin að tileinka sér nýjungar í starfi innan grunnskólans með einhverfum börnum, einkum stúlkum. Við ákváðum að eftir vettvangsnám okkar að kafa dýpra í heim einhverfra barna, einkum stúlkna, í grunnskólum með áherslu á stuðningsþarfir þeirra. Hugtakið einhverfa er alls ekki einsleitt og leggjum við áherslu á mikilvægi þess að ef við ætlum að finna allar einhverfu stúlkurnar í grunnskólum landsins verðum við að hafa mikla þekkingu og áhuga á einhverfurófinu í heild sinni. Við munum skoða muninn á birtingarmynd einhverfu hjá drengjum og stúlkum gagngert til þess að sjá hvaða áhrif það hefur á einhverfar stúlkur að fá greininguna seint. Lítið er til af rannsóknum um einhverfu stúlkna en með tilkomu myndarinnar Að sjá hið ósýnilega hefur orðið vitundarvakning og hefur það opnað umræðu um þennan málaflokk. Markmið rannsóknarinnar er að fá innsýn hjá reyndu fagfólki í vinnu með einhverfum stúlkum og opna umræðuna betur um hvernig við finnum einhverfu stúlkurnar fyrr. Við öfluðum okkur upplýsinga í fræðilegum heimildum, lásum rannsóknir og greinar um birtingarmynd einhverfu hjá börnum. Verkefnið er unnið samkvæmt eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem gögnin byggjast á hálfopnum viðtölum við fagfólk sem hefur unnið mikið með einhverfum stúlkum og niðurstöður okkar sýna að þroskaþjálfum sem og annað fagfólk þurfa meiri þekkingu á einhverfu svo að þeir finni einhverfu stúlkurnar fyrr.

Samþykkt: 
  • 30.6.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42489


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
_skemman_yfirlysing_lokaverkefni.pdf228,59 kBLokaðurYfirlýsingPDF
Einhverfar stúlkur og skólakerfið..pdf515,29 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna