Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42508
Bakgrunnur þessa lokaverkefnis er að skoða hvernig sú hugmyndafræði sem býr að baki skóla án aðgreiningar fer saman við þann raunveruleika sem gerist í hversdagsleikanum innan veggja skóla landsins. Raunveruleika kennara og nemenda í daglegu amstri þar sem allir þurfa að vinna saman að mis krefjandi verkefnum til að láta skóladaginn ganga og jafnframt koma til móts við þær kröfur sem menntakerfið hefur á nám nemenda. Að mæta nemendum á þeirra eigin forsendum með tilliti til greininga og sérþarfa nemenda getur verið erfitt og krefjandi. Kennarar eru því misjafnlega vel undirbúnir og með misjafna þekkingu til að styðja og efla þau börn sem þurfa sértækar námsleiðir til að hjálpa þeim í námi.
þessu verkefni ætla ég að dýpka þekkingu mína á hvernig kennarar eru að valda þessu verkefni sem skóli án aðgreiningar er og eru skólarnir að ná að veita börnunum það sem þau þurfa á þeirra eigin forsendum. Háværar gagnrýnisraddir hafa verið áberandi í fjölmiðlum landsins um hvort þeim nemendum sem eiga erfitt í skóla sé mætt á þeirra eigin forsendum og hvort kennarar og starfsfólk skólanna bregðist rétt við og á uppbyggilegan hátt fyrir nemendur. Rannsóknarspurningar mínar eru því þessar: Hvernig eru kennarar að takast á við að vinna eftir stefnunni skóli án aðgreiningar? Hver er líðan nemenda í skólum án aðgreiningar? Hvernig er líðan kennara sem starfa í skólum án aðgreiningar? Hver er ávinningurinn fyrir nemendur og kennara að fylgja menntastefnunni skóli án aðgreiningar?
Í þessari ritgerð verður unnið úr, greint, rökrætt og ígrundað efni úr fræðilegum heimildum til að svara rannsóknarspurningunum.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
skemman_yfirlysing_lokaverkefni.pdf | 174,11 kB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Lokaverkefni B.Ed.pdf | 445,29 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |