is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/42519

Titill: 
  • Endurhæfing eftir aðgerð á fremra krossbandi : þjálfun, uppbygging og væntingar
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til BS-prófs í íþrótta- og heilsufræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í ritgerðinni verður fjallað um slit á fremra krossbandi hjá knattspyrnfólki, hvaða áhrif þessi meiðsli hafa á knattspyrnufólk og hvernig skal haga endurhæfingunni eftir aðgerð til að byrja að spila aftur. Það verður skoðað hverjir áhættuþættir fyrir því að fremra krossbandið slitni og hvaða vöðva er mikilvægt að styrkja svo að endurhæfingin gangi sem best. Markmið ritgerðarinnar er að skoða hvernig best er að haga endurhæfingu í knattspyrnu eftir krossbandaaðgerð á fremra krossbandi, hvernig sé ákjósanlegt að haga þjálfun og uppbyggingu eftir aðgerð og hverjar eru væntingar leikmanna um endurkomu í knattspyrnu. Það kom í ljós að mikilvægt er að sinna endurhæfingunni vel og ekki fara og geyst af stað því það hefur neikvæð áhrif á endurhæfinguna. Einnig er mikilvægt að vera andlega tilbúinn áður en haldið er aftur á knattspyrnuvöllinn.

Samþykkt: 
  • 1.7.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42519


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerð loka klárt.pdf487.9 kBLokaður til...01.05.2032HeildartextiPDF
Yfirlýsing.pdf420.08 kBLokaðurYfirlýsingPDF