Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/42521
Lokaverkefni þetta samanstendur af kennsluefni í formi barnabókar og fræðilegri greinargerð. Í þessu lokaverkefni verður fjallað um tilfinningalæsi og mikilvægi þess að hefja kennslu á því frá unga aldri. Kennsluefnið miðast við börn á leikskólaaldri og þá ávinninga sem þau geta haft af því að fá kennslu í tilfinningalæsi. Komið verður inn á það hvernig kennarar geta eflt börn félagslega með því að kenna þeim bæði að þekkja og takast á við eigin tilfinningar. Einnig verður fjallað um hvert hlutverk starfsfólks leikskólans er og hvernig það getur stutt við tilfinningalæsi barna með því að taka þátt í slíkri kennslu. Að hafa aðgang að þessu kennsluefni á að auðvelda meðal annars ófaglærðu starfsfólki að stýra kennslu í tilfinningalæsi þrátt fyrir að hafa lítinn sem engan bakgrunn í kennslu ungra barna. Kennsluefnið er skrifað upp eftir því hvernig dagurinn er uppsettur hjá börnum á fjórða aldursári á þeim leikskóla sem höfundur þessarar greinargerðar starfar á. Með kennsluefninu fylgja umræðupunktar til að auðvelda starfsfólki að hefja umræður í sínum barnahópi. Í þessari greinargerð verður leitast svara við því hvers vegna það er mikilvægt að kenna börnum að þekkja eigin tilfinningar og þróa gott tilfinningalæsi strax við leikskólaaldur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
LOKAVERKEFNI 2022 - Brimrún Óskarsdóttir.pdf | 350.72 kB | Opinn | Greinargerð | Skoða/Opna | |
Varða - gleði barnabók - Brimrún Óskarsdóttir.pdf | 3.15 MB | Opinn | Kennsluefni / barnabók | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing Skemman.pdf | 93.14 kB | Lokaður | Yfirlýsing |