is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Viðskiptadeild > Lokaverkefni í viðskiptadeild (BS) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42543

Titill: 
  • Vörumerkjastjórnun á Íslandi : ekki láta tilviljun ráða för
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis er að koma auga á það hvað Íslensk fyrirtæki eru að gera í stjórnun vörumerkja til þess að standa upp úr á markaðnum. Vörumerki eru gæðastimplar í huga neytenda og styttir þann tíma sem tekur að taka ákvarðanir á kaupum á vöru. Fyrirtæki með skýr vörumerkisloforð og sem standa ávallt við sín loforð munu með tímanum byggja upp traust neytenda og styrkja stöðu sína á markaðnum.
    Rannsóknarspurningin sem leitast var eftir að fá svör við og rauði þráðurinn í gegnum verkefnið var: „Hvað er það sem skiptir máli í góðri vörumerkjastjórnun á íslenskum markaði?“
    Farið var yfir þá fræði sem gjarnan er notuð við stjórnun vörumerkja og mikilvægi þess að skapa sér sterka einstaka stöðu á markaði. Þar er farið yfir skilgreiningar hugtaksins vörumerki, stefnumótun vörumerkja, viðskiptasambönd og umtal vörumerkja.
    Framkvæmd var blönduð rannsóknaraðferð þar sem bæði var send út spurningakönnun og tekin viðtöl.
    Spurningarkönnunin var send út á samfélagsmiðlum og fengust 1.190 svör sem voru tekin saman og greind í Excel.
    Tekin voru viðtöl við þrjú fyrirtæki og tvo sérfræðinga á þessu sviði og fengið þeirra sjónarmið á markaðnum og það síðan borið saman við það sem fræðin hefur að segja.
    Helstu niðurstöður voru að íslensk vörumerki geta gert mun betur og eru tækifæri á markaðnum fyrir þá sem vilja skapa sér einstaka stöðu.

  • Útdráttur er á ensku

    The subject of this project is to see what Icelandic companies are doing in brand management to stand out in the market. Brands are a hallmark of quality in the minds of consumers and shortens their decision-making time on products. Companies with clear brand promises and always keep them will over time build consumer loyalty and strengthen their position in the market.
    The research question that was sought to be answered and the common thread through the project was: What is it that Icelandic companies are using in brand management to stand out in the Icelandic market?
    The theoretical background and the importance of creating a strong unique position in the market were discussed. It covers the definitions of the term brand, brand strategy, business relationships and word of mouth.
    A mixed research method was carried out where both a questionnaire was sent out and interviews were conducted.
    The questionnaire was sent out on social media and received 1,190 answers that were compiled and analysed in Excel.
    Three companies and two experts in this field were interviewed and given their views on the market, and then compared with what the theory has to say.
    The main results were that Icelandic brands can do much better and there are opportunities in the market for those who want to create a unique position.

Samþykkt: 
  • 13.7.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42543


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
AgnesValgeirsdóttir_BS_lokaverk..pdf1,55 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Afritun óheimil að hluta eða í heild án leyfis höfundar hverju sinni.