is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Meistarverkefni í félagsvísindadeild (MA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42557

Titill: 
  • Þjónandi forysta í grunnskólum : úr íslenskum og enskum raunveruleika
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Starfsumhverfi innan grunnskóla skiptir miklu máli og þar hefur verið sýnt fram á tengsl starfsánægju og árangurs í starfi, árangurs sem skólar eiga að meta og miða starf sitt út frá því að auka gæði í starfi sínu. Hugmyndafræði þjónandi forystu horfir til þess að leiðtogi sé fyrst þjónn sem hafi tekið meðvitaða ákvörðun um forystu sem leiðir til þess að hann hjálpi fólki að blómstra á þann hátt að afraksturinn sé að hann geti stigið fram og leitt starfið fremstur meðal jafningja. Fyrri rannsóknir sýna tengsl þjónandi forystu í skólum og árangurs starfsins. Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna stöðu hugmyndafræði þjónandi forystu að mati starfsfólks innan tveggja grunnskóla, Ardleigh Green í Romford í Englandi og Naustaskóla á Akureyri. Gerð var spurningalistakönnum með OLA-matstæki James Laub til að kanna stöðu þjónandi forystu auk þess að meta starfsánægju og tengsl milli þjónandi forystu og starfsánægju. Einnig var starfsandi kannaður, áherslur í gæðastarfi og mat á gæðum í starfi skóla.
    Helstu niðurstöður benda til þess að í báðum skólunum sé hugmyndafræði þjónandi forystu til staðar, og einkenni hugmyndafræðinnar heldur sterkari í Ardleigh Green. Starfsánægja var mikil, sambærileg í skólunum báðum og fram kom marktæk jákvæð fylgni milli þjónandi forystu og starfsánægju. Þá kom í ljós að báðir skólar leggja mikla áherslu á gæðastarf miðað við lagalega umgjörð og námskrár og telja sig í góðu samstarfi við nærsamfélag sitt. Niðurstöðurnar eru framlag til þekkingar um þjónandi forystu í skólum og geta nýst við þróun uppbyggilegrar forystu og starfshátta í skólum.

Samþykkt: 
  • 18.7.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42557


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MagnúsÞórJónsson_ML_lokaverk.pdf1.16 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna