Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/42588
Greinagerðin og kennsluleiðbeiningarnar eru lagðar fram sem lokaverkefni til B.ed. -prófs við Deild faggreinakennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Kennsluleiðbeiningarnar eru hugsaðar fyrir mið- og unglingastig. Lokaverkefnið skiptist í tvo hluta. Annars vegar kennsluleiðbeiningar með skáldsögunni Þín eigin þjóðsaga eftir Ævar Þór Benediktsson. Hinsvegar greinagerð um íslenskar þjóðsögur, umfjöllun um kennslu þjóðsagna í grunnskólum og umræða um fyrrnefnda bók. Kennsluleiðbeiningarnar eru heildstæður námsþáttur sem getur nýst kennurum í vinnu samhliða bókinni bæði frá upphafi til enda eða geta nýst sem hugmyndabanki. Markmiðið með kennsluleiðbeiningunum er að efla lestrargleði, læsi, og dýpka þekkingu á ólíkum sviðum sem jafnframt eru áhersluatriði í Aðalnámskrá grunnskóla (2013). Áherslan er lögð á fjölbreytt verkefni þar sem unnið er með til dæmis ritun og ljóð sem og að leita lausna út fyrir bókina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni Þú ert söguhetjan.pdf | 590.74 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman Yfirlýsing Dagný Gréta Hermannsdóttir.pdf | 174.99 kB | Lokaður | Yfirlýsing |