Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/42599
Rannsóknin er 30 ECTS eininga lokaverkefni til meistaraprófs í menntunarfræðum og fjallar um viðhorf starfsfólk grunnskóla á Norðurlandi til menntastefnunar um skóla án aðgreiningar. Rannsóknarspurning verkefnisins er: Hver er þín skoðun á menntastefnunni skóli án aðgreiningar?
Út frá henni koma þrjár undirspurningar sem eru:
1. Að hvaða leyti nærð þú að framfylgja menntastefnunni um skóla án aðgreiningar?
2. Hver er þín skoðun á þeim úrræðum sem standa nemendum til boða?
3. Hvernig er reynsla þín af samstarfi við foreldra barna með sérþarfir?
Markmið þessarar ritgerðar er að kanna viðhorf starfsfólks í grunnskólum á Norðurlandi til menntastefnunnar og athuga hvernig þau viðhorfin samræmast menntastefnunni. Rannsakandi valdi að nota eigindlega rannsóknaraðferð. Þátttakendur rannsóknarinnar eru 9 einstaklingar sem eru allir starfsmenn í grunnskóla á Norðurlandi. Tekin voru 9 einstaklingsviðtöl, viðtöl við 5 kennara, 2 stuðningsfulltrúa og 2 þroskaþjálfa. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að starfsfólk grunnskóla á Norðurlandi hefur neikvætt viðhorf til stefnunnar, erfitt sé að framfylgja henni í skólastarfi, úrræðaleysi ríkir, sérfræðiþekkingu skortir í grunnskóla og foreldrasamstarf sé ekki nýtt nægilega vel.
Lykilhugtök: Viðhorf, sérfræðiþekking, úrræði og úrræðaleysi og ágæti og áskoranir.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
med-ritgerd.pdf | 905.73 kB | Open | Complete Text | View/Open |