Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/4268
Þessi ritgerð er um innflutning á úrum til Íslands árin 1974 – 2007. Þessum gögnum hefur ekki fyrr verið safnað saman. Dregin eru fram ýmis atriði er varða þróun á innflutningi á úrum til Íslands.
Einnig er fjallað um sögu úra og annarra tímamæla. Úr eru flokkuð í gæðaflokka og gæðin flokkuð eftir löndum eða landsvæðum þar sem úrin eru framleidd.
Saga úrsmiða á Íslandi er rakin frá átjándu öld til dagsins í dag. Fjallað er um ýmsa atburði sem marka menningarsögu úrsmiða. Skilgreining á starfandi úrsmiðum er gerð og framtíð þeirra metin. Aldur starfandi úrsmiða er dreginn fram og námsleiðum til menntunar lýst.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
F0_fixed.pdf | 1.66 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |