is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/42695

Titill: 
  • Eldritið fyrir miðstig : umritun á Eldriti séra Jóns Steingrímssonar ásamt verkefnasafni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þetta er 10 eininga lokaverkefni til B.Ed- gráðu á á sviði grunnskólakennslu með áherslu á samfélagsgreinar við Háskóla Íslands. Verkefnið skiptist í greinargerð og tvo viðauka. Fyrri viðaukinn er verkefnasafn gert fyrir miðstigsnemendur grunnskóla til stuðnings við lestur síðari viðaukans sem er umritun á Eldriti séra Jón Steingrímssonar. Greinargerðin fjallar um fræðilegan rökstuðning fyrir umrituninni með vísan í aðalnámskrá. Einnig eru verkefnin greind út frá þeim kennsluaðferðum sem þau eru byggð á. Bókmenntir eru mikilvægur þáttur í menntun, ekki bara við eflingu læsis, heldur gefa þær nemendum líka tækifæri á að sjá heiminn á annan hátt heldur en þau gera venjulega. Eldritið fjallar um Skaftárelda sem hófust 1783. Atburðurinn hafði mikil áhrif á íslenskt samfélag en um 20% þjóðarinnar missti lífið. Með því að kenna það fá nemendur tækifæri til að sjá í hugarheim 18. aldar manns sem horfir á stoðir samfélagsins í kringum sig bresta og viðbrögð hans við því.

Samþykkt: 
  • 30.8.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42695


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Eldritið fyrir miðstig.pdf650.43 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
yfirlysing_lokaverkefni_SBHT.pdf264.5 kBLokaðurYfirlýsingPDF