Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42707
Skóli án aðgreiningar, eða skóli margbreytileikans, er opinber menntastefna á Íslandi sem leggur megináherslu á jöfn tækifæri nemenda. Hún var gerð að opinberri skólastefnu á Íslandi árið 2008 og gengur út á að öll börn séu jöfn, óháð kyni, fötlun, þjóðerni, þjóðfélagsstöðu, fjölskyldubakgrunni eða námslegri færni. Öll börn eiga rétt á að stunda nám við sitt hæfi en stefnan krefst þess að engin aðgreining á sér stað innan bekkjar. Kennarinn gegnir lykilhlutverki þegar kemur að þróun og framkvæmd stefnunnar en viðhorf hans skiptir sköpun. Í þessari ritgerð er sjónum beint að kennaranum, hlutverki hans og áskorunum. Einnig var leitast eftir fræðilegri skilgreiningu á stefnunni ásamt áherslum hennar. Framkvæmd var eigindleg rannsókn þar sem þrír grunnskólakennarar sögðu frá viðhorfum sínum gagnvart stefnunni. Markmið rannsóknarinnar var að fá hreinskilin svör frá kennurum með mislangan starfsferil ásamt mismikilli reynslu á stefnunni. Kennararnir þrír voru almennt með jákvæð viðhorf gagnvart stefnunni og bentu allir á mikilvægi þess að fagna fjölbreytileikanum. Allir kennararnir voru sammála um að fagleg þekking og stuðningur hefur aukist til muna síðustu ár en að þó vanti enn mikla fjármuni svo að stefnan gangi yfir höfuð upp. Kennararnir voru þó allir bjartsýnir hvað varðar framtíð stefnunnar. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að kennarar eru almennt jákvæðir gagnvart hugmyndafræði stefnunnar en að það vanti enn töluvert upp á til að hún gangi upp á skilvirkan hátt.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Skóli án aðgreiningar lokaskjal í PDF.pdf | 397,77 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
skemman_yfirlysing_THR.pdf | 38,68 kB | Lokaður | Yfirlýsing |