is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42742

Titill: 
  • „Samfélagsmiðlar byggjast bara upp á því að vera samfélög“: Kynningar-, og markaðsstarf almenningsbókasafna
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Rannsókn þessi er stöðurannsókn á stöðu kynningar-, og markaðsstarfs almenningsbókasafna á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvernig íslensk almenningsbókasöfn standa í kynningar-, og markaðsstarfi og hvaða áhrif virkt kynningarstarf getur haft á söfnin. Notuð var eigindleg rannsóknaraðferð við gerð þessarar rannsóknar og tekin viðtöl við fimm forstöðumenn almenningsbókasafna og þrjá verkefnastjóra kynningarmála. Viðmælendum var dreift um landið og tekin voru fyrir bókasöfn í ólíkum stærðum til þess að fá sem víðustu niðurstöður. Rannsóknarspurningarnar sem lágu til grundvallar voru þrjár talsins: Hver er staðan á kynningar-, og markaðsmálum almenningsbókasafna á Íslandi? Hvaða áhrif hefur þekking og kunnátta starfsfólks á kynningar-, og markaðsmálum á kynningarstarf safna? Hver er afleiðing aukins sýnileika á miðlum?
    Niðurstöður sýna að almenningsbókasöfn eru komin ágætlega á veg í því kynningarstarfi sem þau sinna. Það hefur myndast skilningur á mikilvægi starfsins og er þá mikill áhugi á frekari þekkingu á markaðsmálum hjá bæði forstöðumönnum og verkefnastjórum safnanna. Áhugi starfsmanna á markaðsmálum er gífurlega mikilvægur fyrir velgengni starfsins og vegur hann þá meira en kunnátta eða fyrri reynsla í markaðsmálum. Öll söfnin stunduðu markaðsstarf að einhverju ráði en það var þó mismikið eftir stærð samfélaga og uppsetningu safna. Markvissast var kynningarstarf hjá söfnum með verkefnastjóra í starfinu en engin munur sást á því hversu markvisst starfið var hjá bókasöfnum sem tilheyra samfélögum á stærðinni 2-7000 manns. Markvisst og vel unnið markaðsstarf getur haft mikil, jákvæð áhrif á starf bókasafna. Það getur aukið heimsóknartölur, flýtt fyrir þróun á hugmyndum almennings til bókasafna og komið þeim nær því sem söfnin stefna að. Þá getur virkt kynningarstarf aukið velvild og jákvæðni í garð bókasafna. Bæði frá almenningi sem og bæjarstjórn þess samfélags sem þau tilheyra.

Samþykkt: 
  • 6.9.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42742


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ADJ_ Lokaritgerð skil. 2022.pdf718,72 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
0860_220905160520_001.pdf36,02 kBLokaðurYfirlýsingPDF