Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/42743
Í þessari ritgerð mun ég fjalla um sanngildið í rappi, hverju rannsakendur sem hafa kannað það hafa komist að og hvort sanngildi sé eitthvað sem fast er í hendi. Ég leita svara við því hvort hægt sé að segja að eitt sé sannara en annað og eins hvort uppruni eins sé réttari en uppruni annars? Þá fjalla ég stuttlega um sögu rappsins og rapparana Vanilla Ice, Eminem og Ad-Rock, MCA og Mike D sem voru meðlimir Beastie Boys og segja mætti að flokkist sem „utanaðkomandi“ rapparar. Ég skoða einnig hvaða áhrif aðrir, sem ekki voru upprunalega partur af senunni, hafa haft á rappið. Sú yfirferð leiðir mig að því að það liggur meira á hvítum röppurum að sanna sig heldur en svörtum eða brúnum og ekki er eins auðvelt að sjá sanngildið í rappi og í fyrstu skyldi ætla.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Eyvindur_Gauti_Vilmundarson.pdf | 449.96 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
Eyvindur_Gauti_Vilmundarson_Yfirlysing.pdf | 249.31 kB | Locked | Declaration of Access |