is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BA Lagadeild / Department of Law >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42890

Titill: 
  • Um réttarstöðu samningsleikmanna KSÍ á grundvelli staðalsamnings KSÍ, og regluverks KSÍ, UEFA og FIFA
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á réttarstöðu samningsleikmanna KSÍ á grundvelli staðalsamnings KSÍ, og regluverks KSÍ, UEFA og FIFA.
    Til þess að komast að ofangreindu þarf fyrst að gera grein fyrir hæstráðendum knattspyrnunnar. Í öðrum kafla ritgerðarinnar verður þ.a.l. fjallað um yfirvöld knattspyrnuheimsins, valdheimildir þeirra, og þær samþykktir og reglur sem þau setja. Einnig verður fjallað um yfirvöld knattspyrnunnar hér á landi, innviði hennar, valdheimildir og regluverk. Í þriðja kafla ritgerðarinnar verður fjallað um ýmis lagaleg álitaefni er varða staðalsamning KSÍ. Reynt verður að komast að því hvers kyns vinnusamningur staðalsamningur KSÍ er, og hvort um fullnægjandi slíkan samning sé að ræða. Einnig verður fjallað um aðra sambærilega staðlaða samninga og þeir bornir saman við staðalsamning KSÍ. Í lok kaflans verður fjallað um þau viðurlög sem samningareglugerð KSÍ kveður á um í tilfelli vanefnda knattspyrnufélags gagnvart samningsleikmanni, þau vanefndarúrræði sem standa samningsleikmönnum til boða, og hvort þau séu í samræmi við vanefndarúrræði starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Í fjórða kafla verður fjallað um úrlausn ágreiningsmála. Verður í fyrsta lagi fjallað almennt um réttinn til réttlátrar málsmeðferðar og réttinn til að bera mál undir dómstóla. Þar næst verður fjallað um c-lið 3. gr. staðalsamnings KSÍ er kveður á um hvernig úrlausn ágreinings skuli háttað. Í lok kaflans verður fjallað um nefndina sem úrskurðar í ágreiningsmálum, og hæfi hennar til að skera úr slíkum málum. Í fimmta og síðasta kafla ritgerðarinnar verður gerð grein fyrir niðurstöðum og lokaorðum.
    Helstu niðurstöður ritgerðarinnar eru í fyrsta lagi þær að um ófullnægjandi og sérstæðan ráðningarsamning er að ræða í tilfelli staðalsamnings KSÍ. Í öðru lagi er það niðurstaða ritgerðarinnar, að á grundvelli núverandi regluverks og fyrirkomulags KSÍ um skipun samninga- og félagaskiptanefndar, hafa samningsleikmenn KSÍ réttmæta ástæðu til að ætla að nefndin geti ekki gætt fyllsta hlutleysis eða sjálfstæðis við úrlausn ágreiningsmála.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis aims to shed light on the legal status of KSÍ's professional players based on KSÍ's standard contract and the regulations of KSÍ, UEFA, and FIFA.
    The second chapter of the thesis discusses the governing bodies in world football, as well as their authority and the statutes and regulations they set. Football's governing body in Iceland, its infrastructure, authority, and regulations will also be discussed. The third chapter of the thesis discusses various legal issues regarding the KSÍ standard contract. The chapter aims to determine what kind of employment contract KSÍ's standard contract is and whether such a contract is adequate. Other similar standard contracts are discussed and compared to KSÍ's standard contract. The chapter discusses the sanctions stipulated by KSÍ's contract regulations in the case of non-compliance by a football club towards their professional player. The non-compliance remedies available to professional players are also discussed, and whether they align with the non-compliance remedies for employees in the general labor market.
    The fourth chapter discusses the resolution of disputes. First, the right to a fair trial and the right to take matters to court are discussed in general. Secondly, Article 3 c of KSÍ's standard contract is discussed, which stipulates how disputes are resolved. At the end of the chapter, the competence of the committee that handles said disputes is discussed. The results and final words are accounted for in the fifth and final chapter of the thesis.
    The main conclusions of the thesis are, firstly, that KSÍ's standard contract is an insufficient and unusual employment contract. Secondly, the thesis concludes that based on KSÍ’s current regulations concerning the appointment of their contract and transfer committee, KSÍ's professional players have a legitimate reason to believe that the committee cannot maintain complete neutrality or independence when resolving disputes.

Samþykkt: 
  • 13.10.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42890


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BA í lögfræði - Vilhjálmur Rúnarsson 30. sept 2022.pdf653,12 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna