is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/42933

Titill: 
  • Viðhorf barna- og unglinga á Íslandi til ensku og íslensku : aukin enskunotkun og breytt málnotkun á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er skrifuð sem lokaritgerð til B.Ed-prófs við grunnskólakennslu með áherslu á íslensku. Í gegnum tíðina hafa Íslendingar barist gegn erlendum máláhrifum sem hafa haft áhrif á íslenskt mál og þjóðfélag. Vegna hnattvæðingar og tæknibyltingar hefur enskunotkun aukist gríðarlega hér á landi. Rannsóknir hafa sýnt að viðhorf Íslendinga til íslensku og ensku er almennt jákvætt. Markmið þessarar ritgerðar er að draga saman helstu rannsóknir um þær breytingar sem hafa orðið á íslensku málsambýli sökum tæknibyltingar með áherslu á aukna enskunotkun. Áhersla verður lögð á viðhorf barna- og unglinga á Íslandi til íslensku og ensku og þeim málfarslegu breytingum sem hafa orðið á tungumálinu undanfarin ár.
    Notast var við megindlega rannsóknaraðferð í formi vefkönnunar. Rannsóknin leiddi í ljós að viðhorf viðmælendanna til íslensku og ensku er almennt jákvætt. Viðmælendurnir virðast flestir hafa meira gaman af enskukennslu en íslenskukennslu í skóla. Þeim finnst þó öllum mikilvægt að vernda íslenskuna og meirihlutinn telur það mikilvægt að tala viðurkennda íslensku. Drög að spurningalista sem var lagður fyrir í vefkönnuninni fylgja sem viðauki við ritgerðina.

Samþykkt: 
  • 25.10.2022
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/42933


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
evahlin_b.ed.pdf457.07 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlýsing.pdf94.88 kBLokaðurYfirlýsingPDF