Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/42981
Í rannsókninni skoðum við starfstengda kulnun meðal þroskaþjálfa. Markmið og tilgangur rannsóknarinnar var að vekja athygli á einkennum kulnunnar sem og áhættuþáttum í störfum þroskaþjálfa og benda á lausnir sem við teljum mikilvægar til að draga úr hlutfalli fagaðila sem verða fyrir starfstengdri kulnun. Við notuðum eigindlega rannsóknaraðferð í rannsókninni en tekin voru viðtöl við tvo þroskaþjálfa sem báðar hafa orðið fyrir kulnun í starfi. Megin rannsóknarspurning okkar var: Hvernig er hægt að draga úr áhættuþáttum til að koma í veg fyrir kulnun í störfum þroskaþjálfa? Við greindum sameiginlegan þráð milli viðmælanda sem og við fyrri niðurstöður rannsóknar sem við studdumst við. Niðurstöður rannsóknar okkar gefa til kynna að þroskaþjálfar eigi aukinni hættu á að verða fyrir kulnun í starfi en með aukinni fræðslu og vitundarvakningu á starfstengdri kulnun er hægt að koma í veg fyrir eða minnka líkur á kulnun. Eftirfylgni yfirmanna skiptir miklu máli og þurfa stjórnendur að þekkja einkenni kulnunnar og bregðast við slíkum aðstæðum sem fyrst og veita kost á handleiðslu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA lokaverkefni LOKA.pdf | 241.51 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlysing_Skemman_NRR_KKL.pdf | 54.2 kB | Lokaður | Yfirlýsing |