Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/42986
Ritgerðin er fræðileg heimildaritgerð. Tilgangur ritgerðarinnar er að vekja athygli á þörfinni fyrir sértæku hinsegin félagsmiðstöðvastarfi sem stuðlar að öruggu rými fyrir hinsegin ungmenni. Fjallað er um starf Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar, sem Reykjavíkurborg rekur í samvinnu við Samtökin 78, ásamt stöðu hinsegin ungmenna, fordóma á Íslandi, fagmennsku og gildi félgsmiðstöðvastarfs. Einnig er að finna útskýringar á hugtökum sem koma fram í umfjölluninni. Stuðst er við hindrana módel Crawfords og kenningar um gagnkynhneigðarhyggju og öruggt rými. Mikil eftirspurn er eftir hinsegin félagsstarfi og hefur mæting í Hinsegin félagsmiðstöðina stóraukist enda er hún besta úrræðið í boði hér á landi fyrir hinsegin ungmenni í leit að öruggu rými. Það myndi efla fagmennsku og þjónustu ef hún væri betur fjármögnuð og fengi stöðugri rekstrargrundvöll. Nauðsynlegt er að styðja við þróun á sértæku hinsegin hópastarfi inni í almennum félagsmiðstöðvum og fræðsluátökum til að gera þær að öruggu rými fyrir hinsegin einstaklinga.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni Söndru pdf.pdf | 428.96 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
skemman yfirlysing lokaverkefni útfyllt.pdf | 34.82 kB | Locked | Declaration of Access |