Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4301
Ritgerð þessi tekur fyrir fasteignamarkaðinn og nauðungarsölur á höfuðborgarsvæðinu. Athugað er hvort það sé verðmunur á seldum fasteignum á nauðungarsölum miðað við á almennum markaði. Farið er í lög um nauðungarsölu, helstu hvata þeim tengdum og möguleika þolenda. Skoðaðar eru nokkrar hagfræðikenningar sem gætu varpað ljósi á mögulegan verðmun, þ.á.m. áhættufælni og kenninguna um verðmunarviðskipti. Skoðaðar eru helstu tegundir uppboða og það sem gerir virkni þeirra öðruvísi heldur en virkni almennra markaða. Í lokin er farið í niðurstöður úr aðhvarfsgreiningum sem mæla áhrif nauðungarsala og veðhafa á kaupverð fasteigna frá árunum 2004 – 2009. Helstu niðurstöður gefa til kynna að áhrifin séu marktæk og að þau séu mismikil eftir tegundum fasteigna, sveitarfélaga og árum.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| i_fixed.pdf | 2,12 MB | Lokaður | Heildartexti |