Please use this identifier to cite or link to this item: http://hdl.handle.net/1946/43069
Tilgangur þessarar rannsóknar er að skoða og mæla upplifun einstaklinga af erlendum uppruna á fordómum á íslenskum vinnumarkaði. Skoðað er hvernig einstaklingar upplifa hugtakið mismunun sem skilgreint hefur verið sem meðvituð ákvörðun um að sneiða fram hjá ákveðnum einstaklingum og/eða hópum í samfélaginu. Samkvæmt fyrri rannsóknum má sjá og gera ráð fyrir ólíkri upplifun eftir því hver uppruni einstaklinga er og hvers konar erlenda eiginleika þeir bera, þ.e.a.s. erlent nafn, erlend útlitseinkenni og/eða erlendan hreim.
Upplifun einstaklinga á fordómum hefur ekki verið mikið rannsökuð og því gefur þessi rannsókn ákveðið vísindalegt gildi sem nýjung á þessu viðfangsefni. Rannsókn þessi er megindleg rannsókn á þann hátt að safnað var gögnum í formi spurningakönnunnar með svokölluðu hentugleikaúrtaki. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að einstaklingar af erlendum uppruna finna fyrir fordómum á íslenskum vinnumarkaði og upplifa sem þeir eigi ekki jöfn tækifæri. Þeir einstaklingar sem bera nöfn og/eða útlitseinkenni sem gefa vísbendingar um erlendan uppruna upplifa meiri fordóma en þeir sem gera það ekki.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
Monika Jovisic MSc ritgerð.pdf | 700.79 kB | Open | Complete Text | View/Open | |
Skemma yfirlýsing.pdf | 581.36 kB | Locked | Declaration of Access |