Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43074
Inngangur: Kennsla um kynheilbrigði veitir unglingum tækifæri til að öðlast sérstaka þekkingu, færni og viðhorf til að stuðla að eigin kynheilbrigði og annarra. Alþjóðlegar og evrópskar rannsóknir hafa oft bent á mikilvægi hennar og árangur. Hérlendis vantar heildstæða stefnu um kynheilbrigðismál í grunn- og framhaldsskólum auk upplýsinga um hvernig kynfræðslu er háttað.
Markmið: Tilgangur rannsóknarinnar var tvíþættur, annars vegar að skoða hvernig staðið er að framkvæmd kynfræðslu í grunn- og framhaldsskólum að mati unglinga með samanburði milli höfuðborgarsvæðis og landsbyggðar, og hins vegar að skoða viðhorf unglinga til gæða þeirrar kynfræðslu sem þeir hafa fengið út frá kennsluháttum, fræðsluþörfum og kynferðislegri sjálfsvirðingu.
Aðferð: Rannsóknin var þversniðsrannsókn. Þátttakendur voru valdir með tilgangsúrtaksaðferð og komu úr framhaldsskólum víðsvegar á landinu. Svöruðu þeir rafrænni könnun um bakgrunn, fyrirkomulag, efnisþætti og gagnsemi. Tilgátur voru prófaðar með Pearson kí-kvaðrat prófi og t-prófi. Marktektarmörk miðuðust við p<0,05.
Niðurstöður: Þátttakendur voru 648 unglingar. Ein af þremur tilgátum um búsetumun stóðst en fjölbreytni kennsluaðferða var marktækt meiri á höfuðborgarsvæðinu en á landsbyggðinni (p<0,001). Hvorki var marktækur búsetumunur á reglubundinni kennslu (p=0,259) né flestum efnisþáttum. Tvær af þremur tilgátum um viðhorf unglinga til gæða kennslunnar stóðust. Marktækur munur var á viðhorfum nemenda sem töldu sig hafa fengið góða kynfræðslu samanborið við þá sem töldu hana síður góða eftir fjölbreytni kennsluaðferða (p<0,001), hæfni kennsluaðila (p<0,001) og hvort kennsla hafi komið til móts við fræðsluþarfir þeirra (p<0,001). Tilgáta um kynferðislega sjálfsvirðingu var studd að hluta til.
Ályktanir: Kennsla um kynheilbrigði virðist kennd með svipuðum hætti á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni en er þó hvorki kennd með skipulögðum hætti né samfellt yfir skólagönguna. Kennsluaðferðir og efnisþættir þurfa að vera fjölbreyttari. Góð kynfræðsla að mati nemenda felst í því hvernig að henni er staðið og hversu vel hún mætir fræðsluþörfum þeirra. Með auknu eftirliti og stefnumótun í kynheilbrigðismálum væri hægt að koma betur til móts við fræðsluþarfir unglinga.
Lykilorð: Kennsla um kynheilbrigði, búseta, unglingur, gæði, kynferðisleg sjálfsvirðing.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefna.pdf | 2,63 MB | Lokaður | Yfirlýsing | ||
Helga Sigfúsdóttir.Kennsla um kynheilbrigði.pdf | 1,41 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |