is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Hugvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Hugvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/43143

Titill: 
  • Framsækin bókaútgáfa: Útgáfustefna smærri forlaga og áhrif á bókamarkaðinn
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi er lögð fram til MA-prófs í Hagnýtri ritstjórn og útgáfu á Hugvísindasviði Háskóla Íslands. Fjallað er um landslag bókaútgáfu út frá sjónarhorni smærri forlaga, eða örforlaga, þar sem útgáfustefna þeirra og áhrif á bókamarkaðinn eru til skoðunar. Meðal annars er byggt á kenningum um örforlög og starfsemi þeirra sem grundvallast á breyttu viðhorfi til bókmennta, bókaútgáfu og bókarinnar sem slíkrar með hliðsjón af sögu bókaútgáfu á Íslandi. Ritgerðin byggist á viðtölum við útgáfustjóra hjá fjórum af smærri forlögum Íslands: AM forlags, Angústúru bókaforlags, Drápu bókaútgáfu og Unu útgáfuhúss sem og útgáfustjóra stærsta bókaforlags landsins, Forlagsins. Til skoðunar eru áherslur smærri útgefenda þegar kemur að útgáfu verka, hönnun prentgripa og sýn þeirra á bókamarkaðinn. Einnig er rætt um viðtökur slíkra forlaga og mikilvægi fjölbreyttra bókmennta fyrir grósku í bókaútgáfu. Til samanburðar við stærri forlögin er rætt við útgáfustjóra Forlagsins um nálgun þess að útgáfu sem og viðbrögð við aukningu smærri forlaga. Markmiðið er að varpa ljósi á stöðu smærri forlaga á Íslandi og mikilvægi þeirra fyrir aukið aðgengi höfunda að útgefendum og fjölbreyttri bókmenntaflóru.

Samþykkt: 
  • 10.1.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/43143


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Framsækin bókaútgáfa - Anna María Björnsdóttir meistararitgerð.pdf563.75 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Skemman_yfirlysing.pdf180.76 kBLokaðurYfirlýsingPDF