Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43157
Sænsk-gríska prinsessan Despina Karadja og Ingibjörg Ólafsson hófu sambúð árið 1923 í kjölfar tilviljanakenndra kynna í höfuðstöðvum K.F.U.K í Stokkhólmi tveimur árum fyrr. Einkaskjalasafn Ingibjargar er varðveitt á Borgarskjalasafni Reykjavíkur, en það hefur vakið athygli hve litlar heimildir þar er að finna um samband hennar við Despinu. Í þessari ritgerð verður ævisöguleg aðferð notuð til þess að skýra samband þeirra tveggja – þar sem ævibrot þeirra verða fléttuð saman í sameiginlega ævisögu. Með því að gera helstu æviatriðum skil kemur einnig í ljós um hvað það ríkir þögn í skjalasafninu og hvernig skjalasafnið er í beinu samtali við samband þeirra á meðan þær lifðu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Blom_a_leidi_ingibjargar_FINAL2.pdf | 670,3 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman_yfirlysing_undirrituð.pdf | 874,93 kB | Lokaður | Yfirlýsing |