Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43166
Í þessu verkefni var markmiðið að hanna og smíða vél sem prentar þrívíða hluti úr koltrefjum. Vegna breyttra aðstæðna í miðju ferli var markmiði verkefnisins breytt og lokaútkoman skildi verða tölvustýrður þriggja ása gálgi. Íhlutir vélarinnar voru ýmist aðkeyptir eða sérsmíðaðir af nemanda. Fékkst við smíði íhluta gríðarlega mikill lærdómur á því sviði og mætti þar helst nefna lærdómur við forritun og vinnu við CNC fræsivélar. Vélin var sett saman jafnóðum og var unnið að endurbótum jafnt og þétt í gegnum ferlið. Gerðar voru greiningar á grind vélarinnar og þá annars vegar burður grindarinnar skoðaður og stífni hennar. Í lok ferlisins stendur uppi þriggja ása gálgi sem hægt er að stjórna með forrituðum kóða.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Honnun_og_smidi_a_tolvustyrdri_fjolasa_vel-LOKA.pdf | 2,15 MB | Lokaður til...28.11.2032 | Heildartexti | ||
Beidni-um-lokun-lokaverkefnis_utfyllt.pdf | 335,13 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |