is Íslenska en English

Lokaverkefni (Diplóma bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > Dip Tæknifræðideild / Department of Applied Engineering >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43227

Titill: 
  • Hristisigti fyrir sorpeyðingarstöð
Námsstig: 
  • Diplóma bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um hönnun á hristisigti fyrir sorpeyðingarstöð sem sigtar málma úr ösku svo hægt sé að endurvinna þá. Hugmyndin kviknaði þegar höfundur sá að það vantaði hristisigti sem hentaði betur þessum iðnaði, mikið af þeim hristisigtum sem í boði eru henta frekar námuvinnslu eða sambærilegum iðnaði. Búnaðurinn er hannaður út frá reynslu höfundar við störf í sorpeyðingarstöð svo hann sé eins hentugur og mögulegt er. Farið er yfir þau vandamál sem komið hafa upp og þau leyst með breyttri hönnun og vali á íhlutum. Skoðað er hvort hægt sé að nota aðra endingarbetri fjöðrun í stað hefðbundinna gorma. Kraftar eru reiknaðir út til að tryggja rétta virkni búnaðarins og til að velja íhluti af réttri gerð.

Samþykkt: 
  • 11.1.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/43227


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Hristisigti fyrir sorpeyðingarstöð.pdf8,1 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna