Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43241
Nokkrar umræður í þjóðfélaginu spunnust vegna breytinga á einkaneyslu við takmarkanir af völdum COVID-19 faraldursins. Á þeim tíma var því varpað fram að aukin heimavera gæti mögulega leitt til heildaraukningar áfengisneyslu. Slógu þá margir á létta strengi og komu með þá tillögu að taka ætti upp hinn danska hádegisbjór sem hversdagslegan sið. Að auki birtust fréttir af því að mikil aukning hefði orðið á smásölu ÁTVR á meðan samkomuhúsum og Flugstöð Leifs Eiríkssonar var skellt í lás. Við það leit dagsins ljós viðfangsefni þessarar ritgerðar og sú spurning hvort raunveruleg breyting hafi orðið á heildarneyslu áfengis á Íslandi eða hvort um tilfærslu neyslugerðar hafi verið að ræða. Á þeim tíma fundust ekki ritrýndar rannsóknir um efnið og því þótti tilvalið að taka efnið til ítarlegrar skoðunar. Því var framkvæmd tímaraðagreining með aðferðafræði Box-Jenkins og unnin forspá um sölu og þannig neyslu áfengis á Íslandi árið 2020. Sú spá var byggð á gögnum fyrir árin 1980-2019 og spáð fyrir árið 2020. Spáin var síðan borin saman við raunverulega sölu. Niðurstöður þessarar greiningar leiddu í ljós að ekki hafi verið um marktæka aukningu að ræða.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Áhrif COVID-19 á neyslu áfengis á Íslandi. Ólafur Hákon Sigurðarson.pdf | 1.18 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlýsing um meðferð lokaverkefnis-Ólafur Hákon Sigurðarson.pdf | 902.64 kB | Lokaður | Yfirlýsing |