Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4334
Greinargerð þessi er birtingaform nokkurra spurninga sem ég hef verið að velta
fyrir mér og reyna að svara og snúast um efnið: Hvers konar kennari vil ég
vera? Viðfangsefni er brúðuspil byggt á sögunni um Búkollu. Brúðuspil er
nokkurs konar blanda af þremur leikjum: Brúðuleik, samkvæmisspili og
púsluspili. Þess vegna er hér fjallað um notkun leikrænnar tjáningar og leiki
barna við kennslu og mikilvægi þess að halda skapandi anda inni í
kennslustofunni. Gluggað er í hugmyndum Plató, Rudolf Steiner og Ingvars
Sigugeirssonar um nálgun kennsluefnis á listrænan hátt. Þá er heimur
leikbrúðanna og hlutverk þeirra og brúðuspilsins í kennslu skoðað nánar. Helsta
niðurstaðan af þessari skoðun má segja að sé sú að þörf er á aukinni notkun
leikrænnar tjáningar og listrænum kennsluháttum, einnig að brúðuspil og
notkun þess eru góð tæki til stuðnings náms og kennslu.
Lykilorð: Brúðuleikur
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
n1_fixed.pdf | 222.94 kB | Opinn | Ritgerð | Skoða/Opna | |
beiningar_fixed.pdf | 106.57 kB | Opinn | kennsluleiðbeiningar | Skoða/Opna |