Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/43343
Með þrotlausri tilraunagleði og skrásetningu á efnum ruddu alkemistar miðalda veginn fyrir efnafræði nútímans. Leit þeirra að aðferð sem gæti breytt blýi í gull varð að kortlagningu á hegðun og uppbyggingu efnasambanda.
Tækniþróun dagsins í dag hefur opnað á enn annan efnisheim með 3D renderingum, en þar hefur notandinn fulla stjórn á öllum eiginleikum efnanna – að segja má vald sem alkemistar sóttust eftir. Þrátt fyrir að 3D efnin séu stafræn hafa þau líkt og náttúruleg efni skilgreind gildi byggingareininga og jafnvel ákveðinn massa sem mælist í gagnamagni.
Efnismheimur 3D renderinga er enn í mótun; möguleikar þessarar tækni eru enn ókortlagðir. Í verkinu Modus Operandi er verkferli alkemista miðalda tvinnað saman við 3D efnisheim nútímans í einskonar stafrænni alkemíu.
Filename | Size | Visibility | Description | Format | |
---|---|---|---|---|---|
GÞ_2022_Hönnunargreinning.pdf | 46,67 MB | Open | Report | View/Open |