Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/434
Tilgangur tilraunarinnar var að sannreyna tilraunir sem gerðar hafa verið á rauðum
sæeyrum (Haliotis rufescens) til að koma í veg fyrir sýkingar af völdum “Rickettsia-
bakteríu”.Gerðar hafa verið tilraunir með sýklalyfinu “Oxyetracyclin” sem hafa sýnt
fram á að hægt sé að halda sýkingu í skefjum eða eyða sýkingu alveg.
Eitt af megineinkennum sjúkdómsins er næringarskortur, dýrin éta minna en skila
frá sér meiri úrgangi samanborið við heilbrigð dýr. Búast má við dauða sýktra dýra
innan við mánuði eftir að merki um smit hafa gert vart við sig.
Í tilrauninni voru dýr sprautuð daglega í 14 daga með ákveðnum skammti af
lyfjablöndu en dýr úr sama hópi send í greiningu við Tilraunastöð HÍ á Keldum til að
fá staðfestingu smits.
Niðurstöður tilraunarinnar sýndu að ekki fundust nein merki smits eftir þriggja
vikna hvíldartíma eftir meðhöndlun. Niðurstöður gefa því vísbendingu um að unnt sá
að losna alfarið við smit með þessari meðhöndlun.
Lykilorð: Sæeyra, Rickettsia, Oxytetracyclin
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
rickettsia.pdf | 702.34 kB | Takmarkaður | Heildartexti | ||
rickettsia_e.pdf | 89.69 kB | Opinn | Rickettsia-smit í sæeyrum - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
rickettsia_h.pdf | 115.49 kB | Opinn | Rickettsia-smit í sæeyrum - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
rickettsia_u.pdf | 109.13 kB | Opinn | Rickettsia-smit í sæeyrum - útdráttur | Skoða/Opna |