is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskólinn á Akureyri > Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43421

Titill: 
  • Tímamæling föstu og undirbúningur aðgerðar hjá 67 ára og eldri með mjaðmabrot og fara í aðgerð á Landspítala
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Inngangur: Öldruðum er að fjölga og þar með talið þeim sem mjaðmabrotna. Áætlað er að 18% kvenna og 6% karla mjaðmabrotni á efri árum. Mjaðmabrot geta orsakað mikla færniskerðingu og breytingu á högum aldraðra. Hægt er að bæta þjónustu til að gera ferlið skilvirkara og til bóta fyrir einstaklinginn. Fasta fyrir skurðaðgerð er nauðsynlegur undirbúningur en rannsóknir síðastliðinna ára hafa sýnt fram á að föstutími er of langur og bið eftir að komast í aðgerð er að lengjast. Mikilvægt er að huga að næringu hjá öldruðum fyrir aðgerð til að koma í veg fyrir fylgikvilla.
    Tilgangur rannsóknarinnar var að greina hvernig undirbúningi og föstu var háttað hjá öldruðum sem mjaðmabrotnuðu og fóru í aðgerð á Landspítala. Einnig var ætlunin að skoða hvaða meðferðir voru veittar á biðtíma eftir að komast í aðgerð.
    Aðferðafræði Megindleg afturvirk gagnarannsókn, þar sem þátttakendur sem mjaðmabrotnuðu og fóru í aðgerð á Landspítala á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2021 voru allir 67 ára og eldri.
    Niðurstöður: Þátttakendur voru 144 talsins, meðalaldur var 82,1 ár (sf ±8,18) Biðtími eftir aðgerð var að meðaltali 30 klst. (sf ±19,6) og meðalföstutími var 13 klst. (sf ± 5,21). Vegna ófyrséðra aðstæðna þurftu 40% þátttakenda að fasta tvo daga í röð. Af þátttakendunum fengu 40% óráðseinkenni fyrir aðgerð. Mat á næringarástandi var framkvæmt hjá 14,6% einstaklinga fyrir aðgerð.
    Ályktanir: Leggja þarf meiri áherslu á að stytta biðtíma eftir aðgerð til að koma í veg fyrir fylgikvilla hjá öldruðum sem mjaðmabrotna. Stytta þarf föstutíma fyrir aðgerð. Huga þarf betur að næringu og virkni á biðtíma til að auka vellíðan og koma í veg fyrir fylgikvilla. Talið er að hægt sé að koma í veg fyrir helming tilfella óráðs með virkri meðferð.
    Lykilorð: Fasta, eldra fólk, mjaðmabrot, hrumleiki, næring, óráð,

  • Útdráttur er á ensku

    Introduction: The number of elderly people is increasing, including those with hip fractures. It is estimated that 18% of women and 6% of men will experience a hip fracture in their later years. Hip fractures can cause loss of skills and a change in residency of those involved. It is possible to improve services to make the process more efficient to benefit the individual involved. Fasting before surgery is a necessary preparation but in recent years research has shown that the fasting time is too long and the waiting time for surgery is getting longer. Therefore, it is important to consider nutrition before surgery in the case of elderly people to prevent complications.
    The purpose of this research was to analyze how preparation and fasting were implemented with elderly people who broke their hips and underwent surgery at Landspítali Hospital. Also, to analyze which interventions are conducted during the waiting time for surgery.
    Methodology: Quantitative retrospective data study, where participants were all ≥67 years old, who had a hip fracture and underwent surgery at Landspítali Hospital in the period January 1st until June 30th 2021.
    Results: Participants were 144, the average age was 82,1 years (SD ±8.18). The waiting time for surgery was on the average 30 hours (SD ±19.6) and the average fasting time was 13 hours (SD ±5.21). Of the participants 40% had to fast two days in a row due to unforeseen circumstances. Also 40% of the participants developed delirium before surgery. Assessment of nutritional status was performed on 14,6% of the individuals before surgery.
    Conclusions: More emphasis needs to be put on shortening the waiting time for surgery to prevent complications for elderly people with hip fractures. Fasting time must be shortened before surgery. More attention must be paid to nutrition and activity during the waiting time to increase wellbeing and prevent complications. It has been estimated that half of the delirium cases can be prevented with active treatment.
    Keywords: Fasting, elderly people, hip fracture, fragility, nutrition, delirium

Styrktaraðili: 
  • Félag íslenskra hjúkrunrfræðinga
Athugasemdir: 
  • Lokaður til...16.02.2027
Samþykkt: 
  • 23.2.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/43421


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Meistararitgerð_loka_Þuríður_17.2.2023(1).pdf987,47 kBLokaður til...16.02.2027PDF