Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43436
Þetta verkefni er 10 eininga lokaverkefni til B.Ed. gráðu í leikskólakennarafræði við Háskóla Íslands. Markmið verkefnisins var að útbúa verkefni fyrir starfsfólk leikskóla til að nýta til útikennslu. Verkefnið er miðað við Gesthúsaskóg á Selfossi en má vel nýta hvar sem er úti við enda tengjast verkefnin öllu því sem má finna og gera úti í náttúrunni og mörg hver má nýta á leikskólalóðum. Unnið var með ýmsar heimildir þar sem meðal annars grunnþættir menntunar í Aðalnámsskrá eru teknir inn í útikennslu sem og tiplað var á aðferð Reggio Emilia, reynslunámi John Dewey og könnunaraðferðinni. Með verkefninu er fylgiskjal með hugmyndum að verkefnum sem má framkvæma með börnum í gönguferðum og von höfundar er sú að þau verkefni komi til með að nýtast starfsfólki leikskóla.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaverkefni til B.Ed.prófs.pdf | 386,13 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Yfirlysing_Skemman.pdf | 252,64 kB | Lokaður | Yfirlýsing |