is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Menntavísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43442

Titill: 
  • „Mér finnst svo gaman að fara með og kynna matinn“ : afstaða sveinsprófsnema í matreiðslu til opinnar vinnuaðstöðu á verknámsstað
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Hér í ritgerðinni sem á eftir fer verður fjallað um matreiðslunám eins og það fer fram á
    Íslenskum verknámsstöðum. Skoðað er hvort og hvernig breytingar í innanhússhönnun og
    umhverfi veitingastaða geti mögulega haft einhver áhrif á störf matreiðslumanna og nema
    þegar kemur að færni í samskiptum við gesti og gangandi. Rannsókn á áhrifum opins
    vinnuumhverfis hefur leitt í ljós áhrif til hins betra í samskiptum, orðbragði, starfsánægju og
    þjónustuvilja gagnvart viðskiptavinum. Þá kveðast einstaklingar, oft konur, telja sig búa við
    meira öryggi gagnvart áreitni á vinnustaðnum. Í þessari ritgerð varð fyrir valinu að rannsaka
    hvort greina mætti sambærilega afstöðu, sérstaklega á meðal matreiðslunema hérlendis en
    einnig var rætt við tvo matreiðslumenn sem hafa starfað í nokkur ár frá útskrift. Tilgangurinn
    var að kanna afstöðu þeirra til þess hvort að þeir telji að opið eldhús geti haft áhrif á samskipti
    eða sé yfir höfuð til bóta fyrir þá sjálfa sem fagmenn. Fyrir valinu varð að eiga hálfopin viðtöl
    við þátttakendur og kanna sérstaklega afstöðu þeirra til ólíkra vinnuaðstæðna með tilliti til
    verknámsins. Myndsímtöl við sex sveinsprófsnemendur í matreiðslu og tvo matreiðslumenn
    starfandi á veitingahúsum leiddu í ljós að viðmælendur voru almennt jákvæðir gagnvart opnu
    starfsumhverfi. Þeir töldu einnig að oft á tíðum gætti óþolinmæði og óþarfa hörku í garð
    byrjenda í eldhúsinu en álitu að slíkt mætti bæta með markvissari kennslu á námsstöðunum.
    Þeir töldu einnig mikilvægt að nemarnir fengju að prófa að gera sem mest jafnhliða kennslu
    frá meistara eða samstarfsmanni. Þeir virtust allir hafa brennandi áhuga á starfinu og álíta
    áhuga mikilvægan þátt í að samstarfsmenn séu til í að leiðbeina minna reyndum. Þeir töluðu
    um að með reynslunni og aukinni verklegri kunnáttu hefðu þeir öðlast meiri ábyrgð og
    viðurkenningu og fundið sterkar fyrir liðsheildinni á vinnustaðnum. Reynslunni hefði svo
    einnig fylgt gjaldgengi til að fá að reyna sig á öðrum vinnustöðum þar sem kynnast mátti
    breytilegri vinnuaðstöðu og starfsháttum, þar á meðal opinni sem þeir virtust hafa sóst eftir
    að fá að reyna.

Samþykkt: 
  • 23.2.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/43442


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bakkalarvekefni.Thyrnir.Halfdanarson.pdf904.66 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
skemman_yfirlysing_.pdf98.54 kBLokaðurYfirlýsingPDF