Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43453
Síðastliðin tvö ár hafa verið fordæmalaus með tilkomu Covid-19 faraldursins. Samfélagið hefur þurft að aðlaga sig að síbreytilegum sóttvarnarreglum. Fyrirtæki brugðu mörg hver á það ráð að setja starfsmenn í fjarvinnu en sá möguleiki var ekki í boði fyrir leikskóla. Starfsmenn leikskóla voru settir í flokk framlínustarfsmanna og hafa þeir starfsmenn staðið vaktina í öllum bylgjum Covid-19 faraldursins.
Markmið þessarar rannsóknar var að kanna líðan starfsmanna í leikskólum Garðabæjar ásamt því að skoða hvort að starfsmenn upplifi að Covid-19 faraldurinn hafi haft áhrif á líðan þeirra. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við tólf starfsmenn úr fimm leikskólum.
Niðurstöður gefa til kynna að starfsmenn leikskóla séu undir miklu álagi og nái sjaldnast að sinna öllum þeim verkefnum sem í þeirra verkahring eru. Álagið tengist fjölda verkefna, mönnun leikskóla ásamt vinnuaðstæðum. Covid-19 faraldurinn hafði áhrif á líðan starfsmanna hvað varðar aukið álag, kvíða og ótta. Niðurstöður benda til þess að álagið hafi verið til staðar fyrir tíma Covid-19 en að faraldurinn hafi aukið þar á. Með hólfaskiptingu leikskóla upplifðu starfsmenn leikskóla hve mikilvægur félagslegur stuðningur er á vinnustað og sérstaklega þegar að starfsmenn vinna undir miklu álagi. Niðurstöður benda til þess að endurskoða þurfi þá verkferla sem farið er eftir hvað varðar fjölda starfsmanna og barna á hverjum leikskóla fyrir sig með vellíðan barna og starfsmanna að leiðarljósi.
The covid-19 epidemic has presented challenges over the past two years that have been without precedence. Society has been forced to adapt to everchanging infection control procedures. Many companies made their workers work from home, however this is not a possibility for kindergartens. Kindergarten workers were categorized as critical workers and their work was not discontinued during the epidemic.
This study aims to explore the well-being of kindergarten workers in the municipality of Garðabær and how the Covid-19 epidemic may have influenced their well-being. This study is based on qualititative methods and interviews with twelve kindergarten workers from five seperate kindergartens.
The findings indicate that kinderagarten workers experience stress and that they are not always able to finish all tasks they are responsible for. The stress is related to too many tasks, inability to fully staff kindergartens and the general situation of the workplace. The Covid-19 epidemic influenced workers well-being with signs of increased stress, anxiety and fear. The findings also indicate that stress was a present factor before the epidemic but that the epidemic increased it. By breaking kindergartens up into seperate units in their work due to infection control the kindergarten workers experienced how important social contact is in the workplace and especially when workers are under stress. The findings also indicate that procedures regarding number of children per staff member in kindergartens should be revised with focus on the well-being of children and staff.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MálfríðurDöggSigurðardóttir_MS_Lokaverk.pdf | 675.3 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Óheimilt er að afrita verkefnið að hluta eða í heild án leyfis höfundar