is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Bifröst > Félagsvísindadeild > Lokaverkefni í félagsvísindadeild (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/43462

Titill: 
  • Eru vélmenni að yfirtaka starfið mitt? Vaxandi samband gervigreindar og almannatengsla á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi fjallar um vaxandi samband gervigreindar og almannatengsla, hver er staða og þróun gervigreindar í starfi almannatengla og möguleikann á því hvort gervigreind geti komið í stað mannlegra samskipta í störfum almannatengla á Íslandi. Rannsakað er hvort almannatenglar á Íslandi þekkja til hugtaksins gervigreind og hvort þeir nýti sér hana í störfum sínum. Skoðuð var staða og þróun í fræðilegum ritum og fyrri rannsóknum. Til þess að ná fram svörum um stöðu gervigreindar í almannatengslum á Íslandi var svo framkvæmd eigindleg rannsókn sem samanstendur af fimm hálf-opnum einstaklingsviðtölum við starfandi almannatengla á Íslandi. Í þeim er þátttakendum gefið tækifæri á að lýsa afstöðu sinni til gervigreindar og þeir spurðir út í notkun á henni í störfum sínum. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að almannatenglar á Íslandi kannast við gervigreind en nýta sér hana ekki í störfum eins mikið og ætla má, miðað við niðurstöður erlendra rannsókna. Þá má ætla að helsta skýring þess sé smæð geirans á landinu, lítil sérþekking á gervigreind og skortur á fagmenntuðum einstaklingum í störfum almannatengla. Þá getur gervigreind ekki komið í stað mannlegra samskipta en getur vissulega hjálpað til við greiningu, úrvinnslu og eftirfylgni daglegra verkefna almannatengils.

  • Útdráttur er á ensku

    This thesis discusses the growing relationship between artificial intelligence and public relations, the status and development of its use in daily worklife and the possibility of artificial intelligence replacing human intelligence in public relations. Are PR specialists in Iceland familiar with the concept of artificial intelligence and do they use it on day-to-day basis? The theoretical background consists of a review of the current literature on the status and development of artifical intelligence and past research on the topic. To obtain answers to the research question, interviews were conducted with five PR specialists in Iceland. The results show that PR specialist in Iceland are familiar with artificial intelligence, however they do not use it on day-to-day basis, as much as might be expected, based on results of foreign studies. It can be assumed that the main explanation is the small size of the Icelandic industry, little knowledge of artificial intelligence in general and the lack of professionally trained individuals in the public relations industry. Human intelligence cannot be replaced by artificial intelligence, but it can certainly help the analysis, processing, and the follow-up on the daily tasks of PR specialists.

Samþykkt: 
  • 16.3.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/43462


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
KarítasSólKristjánsdóttir_BA_lokaverk.pdf922.85 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna

Athugsemd: Óheimilt er að afrita verkefnið að hluta eða í heild án leyfis höfundar hverju sinni