Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43514
Ritgerð þessi er þarfagreining fyrir húsnæðislausa karlmenn á Íslandi. Strax varð takmörkun þar á, þar sem Reykjavíkurborg heldur aðallega utan um málaflokk húsnæðislausra og þjónustar hann mest á Íslandi. Húsnæðislausir karlmenn eru ekki einsleitur hópur og eiga þeir við fjölþættan og flókinn vanda að stríða. Úrræðin sem standa þeim til boða eru af skornum skammti. Neyðarskýlin á Lindargötu og Grandagarði loka klukkan tíu að morgni og opna klukkan fimm að degi til. Önnur úrræði er hafa dagopnun hafa verulega stuttan opnunartíma, eða til klukkan tvö að degi til. Útlistun á opnunartímum úrræða sem standa húsnæðislausum karlmönnum til boða segir meira en segja þarf. Um er að ræða verulegt gap í þjónustu við húsnæðislausa karlmenn á Íslandi. Tölfræði frá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar varpar ljósi á umfang málaflokksins ásamt þjónustuþörfinni, ekki aðeins innan Reykjavíkurborgar heldur innan 28 sveitarfélaga víðsvegar um landið. Þjónustu fyrir húsnæðislausa karlmenn er aðallega að fá í Reykjavíkurborg og um fá úrræði er að ræða. Ekki er komið til móts við þjónustuþarfir húsnæðislausra karlmanna og bráðnauðsynlegt er að setja á laggirnar dagsetur og auka aðkomu annarra sveitarfélaga innan málaflokksins.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ibj17_Inga_BAritgerð.pdf | 845.15 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna | |
Skemman yfirlýsing.pdf | 791.42 kB | Lokaður | Yfirlýsing |