Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/43523
Í þessari ritgerð er skoðað hvernig íslenskur vinnumarkaður hefur þróast frá því að vera nokkuð óálitlegur þar sem lítil tillitssemi og ósvífni ríkti gagnvart starfsfólki. Jafnrétti, kynjamunur, vellíðan starfsfólks og tillit til vinnuaðstæðna var ekki sérlega ofarlega í huga vinnuveitenda hér áður fyrr en hefur þó breyst til muna í seinni tíð. Í verkefninu verður fjallað um baráttu stéttarfélaga sem tengd verður við fræðin sem liggja á bak við fyrirmyndarfyrirtæki og þær rekstrarlegu aðferðir sem fyrirtæki hafa innleitt. VR-könnunin um fyrirmyndarfyrirtæki segir okkur margt um það samband sem starfsfólk á við vinnustað sinn og stjórnendur. Hins vegar er áhugavert að athuga hvort samband sé milli þess að vera fyrirmyndarfyrirtæki og hvort innleiddar séu ákveðnar stjórnunaraðferðir til að hámarka árangur fyrirtækisins.
Aðferðafræðin sem var nýtt við þessa rannsókn var eigindleg aðferð í formi viðtala. Eigindleg aðferð var talin vera hæfasti kosturinn við gerð rannsóknarinnar þar sem tilgangurinn var að taka viðtöl við stjórnendur fyrirtækja sem höfðu fengið viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndarfyrirtæki. Með eigindlegri aðferð er hægt að rýna í aðferðir stjórnenda baksviðs.
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar sýndu fram á að þeir stjórnendur sem rætt var við, taka mjög alvarlega þau atriði sem spurt var um. Fyrirtækin eru metnaðarfull þegar kemur að skipulagi, rekstri, innleiðingu breytinga, líðan starfsfólks og réttindum þess.
Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er hægt að draga þá ályktun að öll fyrirtæki sem hafa hlotið viðurkenninguna „Fyrirmyndarfyrirtæki“ séu jafnvíg þeim fyrirtækjum sem rannsökuð voru.
This dissertation explores how the Icelandic work force has developed from its behavior of disregard and ruthlessness towards their employees where equality, the gender gap, the employee wellbeing and the overall work situation was not the top priority when it came to running a business. The science behind „Company of the Year“ and its business-related methods are linked to the unions’ constant fight for those fundamental employee rights mentioned above. The „Company of the Year“ survey conducted by the VR union tells us a lot about the relationship an employee has with its work place and its supervisors. It is, however, interesting to consider whether there is a connection between the fact of being an outstanding company in general or if said company incorporates certain methods of management in order to maximize its success.
The research methodology was qualitative in the form of interviews. The qualitative method was considered to be the fittest option for this research whereas the purpose was to conduct interviews with several company directors and/or executives who had received the „Company of the Year“ recognition. The qualitative method is unique in the fact that it can get a covert closer look into the methods of directors within their company.
The main conclusion of this research is that the interviewed directors maintain a serious view of the examples of employee rights mentioned above. The companies are ambitious when it comes to organization, business, change implementation for the company as well as the company’s employees’ wellbeings and their rights.
It is important to note it is impossible to assume that all the companies who received „Company of the Year“ recognition are equal to the ones in this research.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MariaLiljaTryggvadottir_BS_lokaverk..pdf | 466,2 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |
Athugsemd: Óheimilt er að afrita verkefnið að hluta eða í heild án leyfis höfundar hverju sinni