is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44010

Titill: 
  • Ógleði eftir svæfingar og skurðaðgerðir á Landspítala - Framsýn rannsókn
  • Titill er á ensku Postoperative Nausea and Vomiting at Landspítali - A Prospective Study
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Síðastliðinn áratug hafa svæfingaraðferðir á Landspítala breyst verulega. Nær allir sjúklingar fá ógleðiforvörn og svæfingu er oftast viðhaldið með svæfingarlyfjum í æð eingöngu. Markmið rannsóknarinnar voru að kanna algengi og alvarleika ógleði og uppkasta á framsýnan hátt og kortleggja hvaða ógleðimeðferð er beitt í fyrirbyggjandi skyni. Einnig var ánægja sjúklinga með ógleðimeðferð könnuð og hvaða forspárþættir tengdust slæmri ógleði.
    Efniviður og aðferðir: Rannsóknin var framsýn ferilrannsókn sem samanstóð af þægindaúrtaki 438 sjúklinga ≥18 ára sem lögðust inn á vöknunardeildir Landspítala eftir val- og bráðaaðgerðir í maí-júlí 2022. Þátttakendur svöruðu spurningalista á vöknunardeild og sólarhring eftir útskrift af vöknunardeild.
    Niðurstöður: Tíðni ógleði á vöknunardeildum reyndist 15% og þar af mátu 3,9% sjúklinga hana 5/10 eða hærri. Daginn eftir greindu 7% sjúklinga frá ógleði eftir útskrift af vöknunardeild og 3,3% mátu hana 5/10 eða hærri. Meirihluti sjúklinga (82%) fékk a.m.k. eitt lyf í ógleðiforvörn og langflestir (97%) voru sáttir með ógleðimeðferðina. Þættir sem tengdust auknum líkum á ógleði sem metin var 5/10 eða hærri daginn eftir aðgerð voru kvenkyn (gagnlíkindahlutfall 1.96, 95% ÖB 1.07-3.63), fyrri saga um hreyfiveiki eða ógleði eftir aðgerð (2.67, 1.48-4.79) og að undirgangast bæklunarskurðaðgerð (2.19, 1.02-4.90), en hækkandi aldur reyndist verndandi þáttur (0.84, 0.72-0.99).
    Ályktun: Tíðni ógleði og uppkasta er almennt lág í almennu þýði sjúklinga þar sem langflestum svæfingum er viðhaldið með svæfingarlyfjum í æð og fyrirbyggjandi ógleðilyfjagjöf er almenn. Breytur sem tengjast verri ógleði daginn eftir aðgerð eru í samræmi við erlendar rannsóknir utan þess að tengsl fundust milli þess að undirgangast bæklunaraðgerð og slæmrar ógleði.

  • Útdráttur er á ensku

    In the last decade anesthesia practice has changed at Landspítali, where the majority of patients now receive antiemetic prophylaxis and the use of total intravenous anesthesia is the dominant mode for maintenance of anesthesia. The aim of this study was to assess the prevalence of postoperative nausea and vomiting (PONV) in a prospective way, the use of PONV prophylaxis, patient satisfactions with PONV management and risk factors associated with PONV.
    Methods: A prospective cohort study using a convenience sample of 438 patients ≥18 years old that were admitted to the postoperative care unit (PACU) after elective or emergency operations in May-July 2022. Patients answered questionnaires in the PACU and 24hrs after discharge from PACU.
    Results: The prevalence of nausea in the PACU was 15% with 3.9% of patients reporting nausea 5/10 or higher. The following day 7% of patients reported nausea with 3.3% rating it 5/10 or higher. A majority of patients (82%) received at least one antiemetic medication and most patients (97%) were satisfied with their nausea treatment. Risk factors associated with PONV were female gender (OR 1.96, 95% CI 1.07-3.63), a history of PONV or motion sickness (2.67, 1.48-4.79) and undergoing orthopedic surgery (2.19, 1.02-4.90), but increasing age was protective (0.84, 0.72-0.99).
    Conclusion: The prevalence of PONV is generally low among the general patient population where anesthesia is mostly maintained with total intravenous anesthesia and PONV prophylaxis is common. Variables associated with worse nausea the day after surgery are consistent with existing studies, except for the connection between orthopedic surgery and PONV.

Styrktaraðili: 
  • Vísindasjóður Landspítala.
Samþykkt: 
  • 10.5.2023
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/44010


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bs_ogledi_Hilma_Jakobsdottir.pdf4,95 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna
Yfirlysing_HJ.pdf459,94 kBLokaðurYfirlýsingPDF