Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/4406
Andlitsókynni er taugasálfræðileg truflun sem lýsir sér í vangetu til að þekkja kunnugleg andlit. Til eru nokkrar tegundir andlitsókynnis. Talað er um versnandi andlitsókynni (progressive prosopagnosia) þegar fólk á í byrjun erfitt með andlitskennsl án skerðingar á öðrum vitrænum sviðum. Versnandi andlitsókynni virðist svo leiða til víðtækari vanda en truflunar við andlitskennsl. Í ritgerðinni er fjallað um tvær rannsóknir í tengslum við andlitsókynni. Í fyrri rannsókninni voru tvö andlitspróf búin til og lögð fyrir hóp heilbrigðra Íslendinga á aldrinum 60 ára og eldri. Seinni rannsóknin er ferilsathugun á konu sem leitaði sér hjálpar vegna versnandi minnisvanda og kvartaði sérstaklega undan því að eiga erfitt með að þekkja kunnugleg andlit.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Gudrun_Rakel_Eiriksdottir_fixed.pdf | 749,67 kB | Lokaður | Heildartexti |