Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: https://hdl.handle.net/1946/44183
Verkefnið fjallar um umbætur á sjálfvirkum búnaði sem notaður er til þess að opna og loka ferjusplittum í vagnlosunarbúnaði skautvinnslu
Álversins í Straumsvík.
Hugmyndin af verkefninu kviknaði við viðhaldsstörf höfundar við búnaðinn.
Viðhaldskostnaður við núverandi búnað var tekinn saman og greindur ásamt töfum vegna handvirkra inngripa á árinu 2022.
Möguleikar á umbótum voru kannaðir og metnir voru kostir og gallar á umbótahugmyndum.
Álitlegasti kosturinn var valinn og farið með í hönnunarferli.
Nýr sjálfvirkur búnaður var hannaður frá grunni með það í huga að hægt væri að nota hann á öllum fjórum stöðum í skautvinnslunni þar sem
ferjusplittum er opnað eða lokað. Útreikningar á kraftaáraunum voru framkvæmdir til þess að tryggja rétt val á íhlutum og efnisþykktum.
Að lokum voru önnur stoðkerfi hönnuð m.a. stýriloftskerfi og PLC forrit til þess að tryggja rétta virkni á búnaðnum.
| Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
|---|---|---|---|---|---|
| Þriggja ása splittiskló_Lokaverkefni_GunnarG.pdf | 53,89 MB | Lokaður til...05.05.2033 | Heildartexti | ||
| Gunnar Guðmundsson lokun.pdf | 393,94 kB | Opinn | Beiðni um lokun | Skoða/Opna |