Please use this identifier to cite or link to this item: https://hdl.handle.net/1946/44239
Fróðaþing 1, 203 Kópavogur
Þetta lokaverkefni í Byggingariðnfræði við Háskólann í Reykjavík felst í því að koma með hugmynd að íbúðarhúsi sem til er og breyta því. Það hús skyldi vera með innbyggðum bílskúr og verkefni okkar fólst í því að breyta því þannig að það uppfyllti kröfur verkkaupa sem í þessu tilviki voru okkar leiðbeinendur. Þær kröfur voru að endanleg útgáfa hússins skuli vera á tveimur hæðum með innbyggðri bílgeymslu. Neðri hæð skyldi vera steypt og efri hæð úr timbri. Frjálst val væri hinsvegar um gerð og staðsetningu einangrunar. Útveggir ættu að vera klæddir loftræstri klæðningu sem skyldi vera viðhaldslítil í a.m.k. 35 ár. Sama skyldi gilda gildir um gólfefni og innréttingar. Neðri hæð er steypt og einangrað að utan. Efri hæð er úr CLT einingum og einangrað að utan. Einnig átti að hanna bæði ofna og gólfhitakerfi í húsið.
Teiknisett inniheldur: Uppdráttaskrá, aðaluppdrætti, verkteikningar, burðavirkisuppdrætti, lagnauppdrætti og skráningatöflu.
Skýrslan inniheldur: Verkáætlun, kostnaðaráætlun, verklýsing, tilboðsskrá, varmataps og lagnaútreikning, þakrennur og niðurföll, loftun þaks, umsókn byggingarleyfis og gátlista.